Beint á leiðarkerfi vefsins
Skákakademía Reykjavíkur

Íslandsmót stúlkna - skólaskák

Dagsetning: 5.2.2012
Staðsetning: Víkin Sjóminjasafn

Íslandsmót stúlkna fer fram á sunnudag

Íslandsmót stúlkna 2012 - einstaklingskeppni fyrir stúlkur á grunnskólaaldri fer fram á sunnudaginn næsta 5. febrúar og hefst taflið klukkan 13:00.

Mótið fer fram í Sjóminjasafninu Víkinni að Grandagarði 8.

Veitt verða verðlaun í tveimur flokkum:
  • Fæddar 1996-1998
  • Fæddar 1999 og síðar.

Tefldar verða 7-9 umferðir eftir fjölda keppenda með 10 mínútur á mann.

Víkin er sérstaklega skemmtilegt safn sem geymir sögu sjávarútvegs á Íslandi. Safnið er opið á sunnudögum frá 13-17. Í safninu er glæsileg kaffitería sem verður opin á sunnudaginn og því tilvalið fyrir fjölskyldur ungra skákstelpna að gera sem mest úr deginum.

Skráning fer fram á Skák.is og fyrirspurnum svarað í stefan@skakakademia.is.


til baka




Stjórnborð

Minna letur Stærra letur