Beint á leiðarkerfi vefsins
Skákakademía Reykjavíkur

Starfsmenn

Stefán Bergsson framkvæmdastjóri  Stefan

Akureyringurinn Stefán Bergsson hóf að kenna skák árið 1998 þá 14 ára gamall. Stefán hafði nýlokið barnaskólanámi sínu við Lundarskóla sem lengi hefur verið stórveldi í akureysku skáklífi - Íslandsmeistarar barnaskólasveita 2002.
Ásamt skákkennslunni í Lundarskóla kenndi Stefán einnig við Glerárskóla og Giljaskóla auk þess að stýra barna- og unglingaæfingum hjá Skákfélagi Akureyrar fram til ársins 2004.
Stefán tók sér frí frá skákkennslu á háskólaárum sínum á Bifröst en sneri aftur árið 2007 þegar hann tók að sér umsjón með framhaldsflokkum Skákskóla Íslands.
Stefán hefur kennt við Skákakademíu Reykjavíkur frá stofnun hennar 2008 og hefur stýrt Skákakademíunni frá 1. mars 2011.
Ásamt framkvæmdastjórn Skákakademíunnar kennir Stefán í 10 skólum Reykjavíkur veturinn 2011-12.
 
Stefán er margreyndur skákmaður og hefur 2175 FIDE-stig.

 

Björn Ívar Karlsson skákkennari bik 2241 ELO-stig

Björn Ívar Karlsson er fæddur og uppalinn í Vestmannaeyjum. Á unglingsárum var barna- og unglingastarf í skákinni í Eyjum ekkert og skákþroski Björns Ívars fór fram heima hjá honum, þar sem hann eyddi oft allt upp í 8 klst. á dag við skákrannsóknir. Á síðasta ári sínu í grunnskóla sá Björn um skákæfingar í skólanum. Björn gekk svo í Menntaskólann á Akureyri og tók þá til við skákkennslu á vegum Skákfélags Akureyrar ásamt því að sinna kennslu í grunnskólum á Akureyri af og til. Að loknu stúdentsprófi sá Björn um skákkennslu í Grunnskóla Vestmannaeyja auk þess að stjórna skákæfingum efnilegra nemenda í Vestmannaeyja. Skáksveit Grunnskóla Vestmannaeyja hefur í nokkur skipti orðið Íslandsmeistari Grunnskólasveita og hefur Björn m.a. fylgt liðinu á Norðurlandamót. Björn er kennaranemi sem hefur einnig starfað við almenna kennslu undanfarin 4 ár.
Björn hefur starfað við Skákakademíu Reykjavíkur síðan í júní 2011 og kennir í haust í 16 grunnskólum á Reykjavíkursvæðinu ásamt því að sinna kennslu hjá Skákskóla Íslands.
 
Björn hefur teflt á fjölmörgum skákmótum, jafnt á Íslandi sem og erlendis. Hann hefur sjö sinnum orðið Skákmeistari Vestmannaeyja, tvisvar sinnum Suðurlandsmeistari, ásamt því að hafa landað Íslandsmeistara- og Norðurlandameistaratitli Framhaldsskólasveita með Menntaskólanum á Akureyri.


 
Magnús Pálmi Örnólfsson skákkennari mpo 2175 ELO-stig

Magnús Pálmi er fæddur og uppalinn í Bolungarvík. Hann byrjaði snemma að tefla og mátaði pabba sinn sex ára gamall. Bolungarvík byggir á mikilli skákhefð. Bærinn varð snemma mikill útgerðabær og sú hefð skapaðist í upphafi 19.aldar að teflt var í landlegum. Hefðin hefur haldist allt til dagsins í dag. Magnús byrjaði að kenna í Grunnskóla Bolungarvíkur tólf ára gamall og allt þar til hann lauk grunnskólanámi. Eftir grunnskóla lá leiðin í Menntaskólann á Akureyri þar sem hann hafði umsjón með skákæfingum í skólanum auk þess sem hann sá um skákkennslu í Lundaskóla ásamt fleirum. Magnús byrjaði að kenna við Skákakademíu Reykjavíkur 2011 og sér um skákkennslu í Fossvogsskóla.

 

Róbert Lagerman skákkennari og FIDE-meistari 2315 ELO-stigrobbi

Róbert Lagerman er fæddur í Reykjavík 29. júlí 1962. Róbert hefur tekið að sér skákkennsli víða þau þrjátíu ár sem hann hefur boðað fagnaðarerindið.

Róbert heimsótti alla grunnskóla landsins þegar Skákfélagið Hrókurinn var með skákynningu og gaf þriðju bekkjar nemendum skákbókina Skák og Mát á árunum 2002-2005. Einnig hefur Róbert verið með skák-kennslu á vegum Skákfélags Garðabæjar, Taflfélags Reykjarvíkur ogTaflfélags Seltjarnarness.

Um langt árabil sinnti Róbert skákkennslu fyrir verkalýðsfélagið Dagsbrún og síðar Eflingu, einnig tók Róbert að sér tímabundið skákþjálfun Flugleiða á árunum 1985-1990. Einnig hefur Róbert verið með skáknámskeið á vegum Reykjarvíkurborgar, fyrir atvinnulausa. Róbert hefur verið skák-leiðbeinadi hjá Rauða-Krossinum, Barnaspítala Hringsins og á Litla-Hrauni frá árinu 2002.

Róbert hefur verið skákkennari á Grænlandi frá árinu 2002, ári, einnig kenndi Róbert skák í Bandaríkjunum árið 1997, Róbert hefur líka tekið að sér skákþjálfun í Færeyjum undanfarin tvö ár.

Róbert hefur verið skákkennari Skákakademíunnar frá stofnun hennar, og sinnti m.a. því frumkvöðlastarfi að kenna elstu börnum í leikskólum Reykjarvíkur, ásamt því að kenna og standa að stofnun skákfélags hjá kvenkyns Háskólanemendum.

Í vetur kennir Róbert í fimm grunnskólum ásamt því að stýra leikskólaheimsóknum.

 

Hjörvar Steinn Grétarsson skákkennari 2452 ELO-stig  hjorvar

Hjörvar Steinn Grétarsson er landsliðsmaður í skák og efnilegasti skákmaður landsins. Hann er margfaldur Íslandsmeistari í yngri flokkum bæði í einstaklingskeppnum og sveitakeppnum með Rimaskóla. Hjörvar var alla sína tíð í Rimaskóla þar sem hann fékk að miklu leyti sitt skákuppeldi. Hjörvar hefur verið helsti þjálfari Rimaskólasveitanna undanfarin ár og verið liðsstjóri þeirra á Norðurlandamótum.

Hjörvar hefur kennt á sumarnámskeiðum Skákakademíunnar auk þess að sinna einkakennslu Vignis Vatnars Stefánssonar.

 

 Davíð Kjartanssondavid skákkennari og FIDE-meistari 2305 ELO-stig

Davíð Kjartansson er einn af reyndari skákkennum landsins þrátt fyrir að enn vanti ár í þrítugt. Davið varð snemma sterkur skákmaður og mjög efnilegur þegar hann var yngri. Davíð var í Breiðagerðisskóla og svo Réttarholtsskóla. Þessir skólar höfðu um miðjan tíunda áratuginn á að skipa sterkum skáksveitum sem Davíð leiddi til ófárra titla. Áður en Davíð kláraði Réttarholtsskóla var hann byrjaður að kenna skák við Breiðagerðisskóla. Davíð hefur komið víð við í skákkennslu sinni en er einna þekktastur fyrir merkilegt starf sitt í Grafarvogi þar sem hann hefur þjálfað hjá Skákdeild Fjölnis og Rimaskóla.

Davíð byrjaði að kenna við Skákakademíu Reykjavíkur 2011 og Í vetur sinnir Davíð skákkennslu í Fellaskóla og Suðurhlíðaskóla. 

 

Donika Kolicadonika-jpeg skákleiðbeinandi

Donika er 14 ára gömul nemandi við Hólabrekkuskóla. Donika fæddist í Kosovo en flutti til Íslands 11 ára gömul. Donika byrjaði fljótt að tefla og varð Stúlknameistari TR. Undanfarin misseri hefur Donika verið mjög virk í starfssemi Skákakademíunnar og skemmst er að minnast þegar hún var talsmaður skákkrakkanna sem söfnuðu fyrir fé fyrir sómölsk börn með skákmaraþoni í Ráðhúsinu.

Ásamt því að tefla með unglingasveit Hólabrekkuskóla aðstoðar hún Björn Ívar við kennslu yngri nemenda.

 

Leifur Þorsteinsson leifur skákleiðbeinandi

Leifur er 14 ára gamall nemandi í Hagaskóla. Síðastliðið vor kláraði Leifur Melaskóla þar sem hann kynntist skákinni þegar Björn Þorfinnsson hóf skákkennslu í skólanum á vegum Skákakademíunnar. Leifur hefur tekið miklum framförum undanfarin ár og er gott dæmi um að það er hægt að verða góður í skák þó maður byrji ekki að tefla pínulítill.

Í vetur stjórnar Leifur opnum skákæfingum í Melaskóla á mánudögum frá 14:30 - 16:00.

 

Veronika Steinunn Magnúsdóttirveronika

Veronika Steinunn Magnúsdóttir hefur teflt í mörg ár. Undanfarin ár hefur hún tekið miklum framförum og er í stúlknalandsliði Íslands í skák. Eins og Leifur var Veronika í Melaskóla og mynduðu þau sterka skáksveit skólans sem komst á verðlaunpall á Íslandsmóti barnaskólasveita síðastliðið vor.

Í vetur stjórnar Veronika opnum skákæfinum í Melaskóla á mánudögum frá 14:30 - 16:00.




Stjórnborð

Minna letur Stærra letur