Vogaskóli
Kennari: Stefán Bergsson
Kennslutími: Miðvikudagar 14:00 - 15:00
Nemendafjöldi: Um 20
Ráðgátan um töflin í Vogaskóla!
Lítið hefur verið um skákkennslu í Vogaskóla síðustu áratugi sem er mikil synd því skólinn er svo gott sem uppvið Taflfélag Reykjavíkur og Skáksamband Íslands. Skákakademían hóf nýlega kennslu við skólann og var góð mæting á fyrstu skákæfinguna þegar tuttugu nemendur á öllum aldri mættu.
Skólinn er vel búinn að töflum en um 30 töfl eru til í skólanum og er tilkoma þeirra nokkur ráðgáta! Allavega kannast engin í skólanum við uppruna þeirra.





