Vel heppnað fjöltefli Þrastar í Hólabrekku - Grunnskólar
20.5.2010
Vel heppnað fjöltefli Þrastar í Hólabrekku
Kennsla Skákakademíu Reykjavíkur í Hólabrekkuskóla hefur gengið með eindæmum vel þennan veturinn. Stefán Bergsson sinnir kennslunni en það er ekki síst Birnu Halldórsdóttur að þakka hversu vel hefur gengið. Sem dæmi um framtakssemi Birnu má nefna kökubasar sem haldinn var um daginn til styrktar skákstarfi skólans. Söfnuðust fleiri tugir þúsunda og verður allur ágóðinn nýttur í að kaupa skákklukkur handa skólanum. Sveitir skólans hafa náð verðlaunum í sveitakeppnum og meðlimir sveitarinnar látið að sér kveða í skólaskákinni og má þar helst nefna Dag Kjartansson í eldri flokki og Heimi Pál Ragnarsson í yngri flokki.
Skákstarfinu í skólanum lauk í dag með fjöltefli Þrastar Þórhallssonar stórmeistara við 26 nemendur. Þröstur vann 24 skákir en gerði jafntefli við Sverri Frey Kristjánsson og Dag Kjartansson. Fjölteflið fór fram á hátíðarsal skólans og heppnaðist í alla staði afbragðs vel og var því veitt töluverð athygli innan skólans meðal nemenda, kennara og skólastjórnenda. Sem dæmi má nefna að heill bekkur kom úr tíma til þess eins að fylgjast með því hvernig fjöltefli fer fram.
Að loknu fjöltefli fengu allir þátttakendur viðurkenningarskjal og skákbók frá Hólabrekkuskóla.





