Skólaskákmeistarar Reykjavíkur krýndir! - Grunnskólar
29.4.2010
Skólaskákmeistarar Reykjavíkur krýndir!
Lokadagur Skólaskákmóts Reykjavíkur var æsispennandi. Í eldri flokki voru Örn Leó Jóhannsson og Dagur Kjartansson efstir eftir fyrri daginn með 4,5 vinninga af 5 og þeir slógu hvergi af á seinni deginum og unnu allar sínar skákir. Því varð að grípa til einvígis til að skera úr um titilinn og hafði Örn Leó þar sigur 1,5 – 0,5. Framfarirnar hjá Erni Leó hafa verið gríðarlegar á þessu skólaári og í kjölfarið hefur hann skotist upp íslenska skákstigalistann. Á Kornax-mótinu í janúar græddi hann 145 íslensk skákstig, sem er náttúrulega með ólíkindum. Hann fylgdi því eftir með frábærum árangri á Reykjavik Open sem og Skákþingi Íslands – áskorendaflokki og ætti því að vera farinn að nálgast 2000 stiga múrinn. Frammistaða Dags var einnig með miklum ágætum og hann veitti Erni harða keppni. Dagur hampaði titlinum í yngri flokki í fyrra og því hefði það sennilega verið einsdæmi hefði hann svo sigrað í eldri flokkinum árið eftir! Með sama áframhaldi eru hinsvegar allar líkur á því að hann fái skráð nafn sitt á bikarinn í nánustu framtíð. Þriðji varð Emil Sigurðarson og vann hann sér því þátttökurétt í Landsmótinu í skólaskák ásamt Erni Leó og Degi. Heilt yfir var taflmennskan í eldri flokki á háu plani og keppendum til sóma.
Lokastaðan í eldri flokki:1. Örn Leó Jóhannsson (Laugalækjarskóla) – 8,5 v.
2. Dagur Kjartansson (Hólabrekkuskóla) – 8,5 v.
3. Emil Sigurðarson (Laugalækjarskóla) – 7 v.
4. Brynjar Steingrímsson (Hólabrekkuskóla) – 5 v.
5. Franco Soto (Laugalækjarskóla) – 4 v.
6. Jóhann Bernhard Jóhannsson (Hlíðaskóla) – 3,5 v.
7. Alexander Már Brynjarsson (Laugalækjarskóla) – 3,5 v.
8. Jóhann Karl Hallsson (Laugalækjarskóla) – 3 v.
9. Elín N. Viggósdóttir (Engjaskóla) – 2 v.
Keppnin í yngri flokki var ekki síður spennandi. Fyrir síðustu umferð var Gauti Páll Jónsson efstur með 5,5 v. og hann mætti Heimi Páli Ragnarssyni sem var í 2-4.sæti með 5 vinninga ásamt Degi Ragnarssyni og Leifi Þorsteinssyni. Svo fór að Heimir Páll hafði sigur í hörku skák og Dagur knésetti Leif á öðru borði. Niðurstaðan varð því sú að Heimir og Dagur urðu efstir og jafnir með 6 vinninga og urðu að tefla einvígi um titilinn. Þar hafði Dagur sigur, 2-0, og er því Skólaskákmeistari Reykjavíkur í yngri flokki. Dagur hefur verið afar sigursæll á þessu ári, bæði í einstaklings- og sveitakeppnum, og bætir nú enn einni skrautfjöðurinni í sinn hatt. Hann hefur einnig verið afar duglegur við að mæta á kappskáksmót í vetur en sú reynsla er oft lykillinn að framförum ungra skákmanna. Í þessu móti tapaði hann snemma fyrir Gauta Páli en sýndi gríðarlegt keppnisskap og sigurvilja með því að vinna fjórar síðustu skákirnar og þar á meðal sterka andstæðinga eins og bræðurna Oliver Aron og Kristófer Jóel sem eru einmitt samherjar hans í Rimaskóla. Árangur hins 8 ára gamla Heimis Páls var einnig stórkostlegur og ljóst er að þar er gríðarlegt efni á ferðinni. Helstu styrkleikar hans er mikil hugmyndaauðgi og afar hröð hugsun en það getur fljótt snúist upp í veikleika ef maður leikur strax einhverjum spennandi leik sem manni dettur í hug. Látið greinarhöfund þekkja það! Í þessu móti tefldi Heimir afar vandað og vel, einbeitingin var til fyrirmyndar og hann notfærði sér styrkleika sína á réttum tímapunktum. Dagur og Heimir Páll verða fulltrúar Reykjavíkur á Landsmótinu í skólaskák 6-8. maí og verður spennandi að fylgjast með þeim í þeirri baráttu. Þriðja sætið hlaut Gauti Páll með 5,5 vinninga eins og Rafnar Friðriksson en Gauti hafði betur á stigum. Hann átti svo sannarlega meira skilið því hann vann fyrstu fimm skákirnar með mikilli hörku og leiddi mótið allan tímann. Sérstaklega tefldi Gauti endatöflin vel og vann til dæmis góða skák af Degi í kóngsendatafli og aðra skák af Breka Jóelssyni í jafnteflislegu hróksendatafli. Gauti hefur verið manna virkastur við taflmennsku á unglingaæfingum taflfélaganna í höfuðborginni og það er greinilega að skila sér. Eftir mótið sagði hann við skákstjóranna: „Ég tefli bara og tefli en núna þarf ég að fara að læra eitthvað!!“. Mikið til í því og það er ljóst að það verður gaman að kenna Gauta Páli – slíkur er áhuginn.
Keppendur frá Laugalækjarskóla og Melaskóla settu mikinn svip sinn á mótið með frábærri frammistöðu. Keppendur úr þessum skólum eiga það sameiginlegt að hafa byrjað að tefla síðastliðið haust (!) og hafa framfarirnar verið með hreinum ólíkindum. Svo miklar að nemendur skólanna eru farnir að velgja bestu skákmönnum landsins í þessum aldursflokki undir uggum.
Að lokum er vert að benda á frammistöðu Nancyar Davíðsdóttur úr Rimaskóla en hún hlaut 4 vinninga. Það verður að teljast frábært hjá nemenda í 2.bekk! Skákáhugamenn eru hvattir til að leggja þetta nafn á minnið.
Lokastaðan í yngri flokki:
1. Dagur Ragnarsson (Rimaskóla) – 6 v.
2. Heimir Páll Ragnarsson (Hólabrekkuskóla) – 6 v.
3. Gauti Páll Jónsson (Grandaskóla) – 5,5 v.
4. Rafnar Friðriksson (Laugalækjarskóla) – 5,5 v.
5-7. Leifur Þorsteinsson (Melaskóla) – 5 v.
Oliver Aron Jóhannesson (Rimaskóla) – 5 v.
Ingvar Ingvarsson (Laugalækjarskóla) – 5 v.





