Laugalćkjarskóli
Kennari: Björn Ívar Karlsson
Kennslutími: Mánudagar, 14:30-16:00
Nemendafjöldi: 6-10 (úrvalshópur)
Í Laugalækjarskóla í Laugardalnum er boðið upp á skákkennslu á unglingastigi. Laugalækjarskóli býr yfir mikilli skákhefð og þaðan hafa komið margir af bestu skákmönnum landsins. Skólinn á mikið af búnaði sem tengist skák, skáksettum, klukkum og borðum. Auk þess eru meðal starfsfólksins miklir skákáhugamenn. Nemendahópurinn er nokkurs konar úrvalshópur sem hefur mikla skákþekkingu og hefur skákkennari Skákakademíunnar, sem þar sér um kennsluna, gert miklar kröfur til þeirra. Nemendurnir eru ótrúlega áhugasamir, yfirvegaðir og skarpir og hafa undantekningalaust fulla athygli í eina og hálfa klukkustund á meðan kennslu stendur! Vonir standa til að Laugalækjarskóli sendi lið á Íslandsmót Grunnskólasveita og er ekki nokkur spurning um að þar muni þeir blanda sér í hóp efstu liða. Það eru sannarlega bjartir tímar framundan hjá þessum frábæra hóp nemenda.





