Korpuskóli
Kennari: Björn Ívar Karlsson
Kennslutími: Fimmtudagar, 10:00-11:20
Nemendahópur: um 25
Korpuskóli, í Grafarvoginum, er einn þeirra rúmlega 30 skóla á Reykjavíkursvæðinu sem býður nemendum sínum upp á skákkennslu fyrir tilstilli Skákakademíu Reykjavíkur. Kennslan fer fram inni á stundatöflu í 3. bekk og er hópnum, sem er nokkuð stór, skipt í tvo hluta sem hvor um sig fær kennslu í tæpar 40 mínútur vikulega. Skákáhugi meðal nemenda er mikill og fer það ekki framhjá neinum sem heimsækir heimastofu bekkjarins því þar eru skákborð og taflmenn allstaðar við höndina. Nemendur lögðu það einnig á sig í 1. bekk að búa saman til taflborð úr perlum! Áherslan í kennslunni í upphafi skólaársins hefur verið á grunnatriði skákarinnar eins og mannganginn og almennar reglur. Einnig eru nemendur áhugasamir um nafngiftir hinna mismunandi leiða í skákbyrjunum og hinum fjölmörgu brögðum og gildrum sem skáklistinni fylgja. Skákkennarar Skákakademíunnar eru stoltir og ánægðir með svo áhugasaman hóp og vonir standa til að skólinn sendi frá sér lið á Íslandsmót barna- og grunnskólasveita sem fram fer í vor.





