Ísaksskóli
Kennari: Matthías Sigvaldason
Kennslutími: 15:10 - 16:00 mánudaga, miðvikudaga og föstudaga
Nemendafjöldi: 16-20
Ísaksskóli hefur lengi verið þekkt stærð í reykvísku skáklífi. Anton Sigurðsson var þar skólastjóri í nokkra áratugi og hélt uppi öflugu skáklífi við skólann. Sterkir skákmenn hafa komið frá skólanum og má nefna Hallgerði Helgu Þorsteinsdóttir landsliðskonu og Sigurð Pál Steindórsson fyrsta Íslandsmeistara barna.
Síðustu ár hefur Skákakademían staðið fyrir mikilli skákkennslu í Ísaksskóla og á tímabili námu allir nemendur skólans skák í viku hverri.
Nú er skákkennslunni háttað þannig að Matthías Sigvaldason starfsmaður Ísaksskóla sinnir skákkennslunni en Matthías er mjög reyndur knattspyrnuþjálfari og hefur áður komið að skákkennslu.
Skákakademían styður við skákkennsluna með reglulegum heimsóknum.





