Ingunnarskóli
Kennari: Björn Ívar Karlsson
Kennslutími: Föstudagar, 12:00-13:35
Nemendafjöldi: Um 40
Í Ingunnarskóla, í Grafarholtinu, er mikill skákáhugi. Myndaleg taflsett prýða ganga skólans og nemendur eru ákaflega áhugasamir um skákkennsluna sem þar hefur verið í gangi undanfarið. Kennd er skák hjá 3. bekk og hafa nemendur rúmlega 40 mínútur vikulega í skákina. Efni vetrarins hefur byggst upp á grunnatriðum. Fjallað hefur verið um mannganginn og helstu reglur, sögu skákarinnar, og lítinn hluta þess aragrúa skákbyrjuna og leiða sem skákíþróttin bíður upp á. Hver einasti tími er skemmtilegur hjá krökkunum og undantekningalaust fara þau brosandi aftur inn í kennslustofuna. Gaman verður að sjá nemendur úr þessum bráðskemmtilega hóp reyna fyrir sér á skákmótum í framtíðinni!





