Beint á leiđarkerfi vefsins
Skákakademía Reykjavíkur

Húsaskóli

Kennari: Björn Ívar Karlssonhusa

Kennslutími: 8:10-9:30 á fimmtudögum

Nemendahópur: tæplega 40 nemendur

Í Húsaskóla í Grafarvoginum er boðið upp á skákkennslu í 3. bekk sem Skákakademía Reykjavíkur
stendur fyrir. Húsaskóli er einn þeirra rúmlega 30 skóla á Reykjavíkursvæðinu sem taka þátt í verkefni
Skákakademíunnar. Nemendahópurinn er nokkuð stór, tveir bekkir með tæplega 20 nemendum hvor.
Kennslustundirnar fara fram einu sinni í viku og er hvor þeirra 40 mínútur. Áhugi nemenda er mikill á
leyndardómum skáklistarinnar og hafa þeir m.a. lagt á sig í upphafi skólaársins að læra nokkurn hluta
ţess aragrúa af nöfnum sem fylgja skákbyrjunum auk þess að hafa lært mannganginn og almennar
skákreglur utanbókar. Keppnisharkan í nemendum er mikil og vonast skákkennarar Skákakademíunnar
eftir því að skólinn verði einn af mörgum þátttakendum á Íslandsmóti barna- og grunnskólasveita í vor.

Hefðbundin kennslustund fer þannig fram að kennari fer yfir efnið í upphafi tímans. Reynir kunnáttu nemenda með nokkrum þrautum eða kveikir umræðu um ákveðnar stöður. Í lok tímans er svo undantekningalaust teflt og hart barist!


Stjórnborđ

Minna letur Stćrra letur