Hólabrekkuskóli
Kennari: Björn Ívar Karlsson
Kennslutími: 8:05-9:25 á miðvikudögum
Nemendafjöldi: Á milli 40 og 50
Í Hólabrekkuskóla í Breiðholtinu er boðið upp á skákkennslu fyrir nemendur 3. bekkjar og í vali í unglingadeild. Nemendahópurinn er stór og er honum skipt niður í nokkra minni hópa. Kennslan fer fram í einni 80 mínútna kennslustund í hverri viku. Nemendur eru einstaklega áhugasamir og margir þeirra koma með töluverða skákþekkingu að heiman; eitt og annað sem þau hafa lært frá mömmu og pabba eða afa og ömmu. Viðfangsefni kennslunnar í upphafi skólaársins hafa verið helstu grunnatriði skákarinnar, manngangurinn, skákbyrjanir og eitt og annað sem tengist brellum og gildrum. Margir ungir nemendur skilja tenginuna milli skákarinnar og almennar herkænsku og auk þess átta þau sig á því að það er mikilvægt fyrir skákmann að hafa einhverja haldbæra áætlun alveg eins og í lífinu sjálfu. Hólabrekkuskóli er einn þeirra rúmlega 30 skóla á Reykjavíkursvæðinu sem bjóða nemendum sínum upp á skákkennslu fyrir tilstilli Skákakademíu Reykjavíkur.





