Hlíđaskóli
Kennari: Björn Ívar Karlsson
Kennslutími: Fimmtudagar, 13:20-14:40
Nemendafjöldi: Rúmlega 30
Í Hlíðaskóla er boðið upp á skákkennslu í valhóp á unglingastigi. Aðsóknin er mikil en hópurinn er vel rúmlega 30 nemendur. Hópurinn er samsettur úr nemendum úr 8.,9. og 10. bekk. Meirihlutinn eru drengir en aðeins ein stúlka sækir tímana. Þrátt fyrir þrengsli vegna fjöldans hafa nemendur sýnt mikinn áhuga á kennslunni og taflmennskunni sjálfri. Þröngt mega sáttir sitja! Áherslan í kennslunni hefur verið að byggja ofan á þá þekkingu sem nemendur fengu á síðasta ári en Björn Þorfinnsson, fyrrum framkvæmdastjóri Skákakademíunnar, kenndi þá einnig sambærilegt valfag. Það er von Skákakademíunnar að Hlíðaskóli sendi frá sér lið á Íslandsmót Grunnskólasveita og sýni hvað í þeim býr!





