Hamraskóli
Kennari: Björn Ívar Karlsson
Kennslutími: 11:30-12:30 á miðvikudögum.
Nemendafjöldi: Rúmlega 20
Hamraskóli, í Grafarvogi, býður nemendum sínum upp á skákkennslu í 3. bekk. Kennslan fer fram einu sinni í viku, 60 mínútur í senn. Nemendahópurinn er fjörugur og virkilega áhugasamur. Áhersla kennslunnar í upphafi skólaársins hefur verið lögð á grunnatriðin þó svo að margir nemendur kunni nú þegar ýmislegt fyrir sér í skáklistinni. Gleðin skín úr hverju andliti þegar tekið er til við taflmennskuna og gaman er að sjá svo unga nemendur veita flókinni hugaríþrótt eins og skákinni athygli sína. Skákakademía Reykjavíkur stendur fyrir skákkennslunni og er Hamraskóli einn af rúmlega 30 skólum Reykjavíkursvæðisins sem tekur þátt í þessu verkefni. Stefnan er sett á að kveikja áhuga meðal nemenda auk þess að þjálfa meðal þeirra útsjónarsemi, áætlunargerð og ákvörðunartöku en þetta eru atriði sem mikilvæg eru í skákinni alveg eins og í lífinu sjálfu.





