Grandaskóli
Kennari: Stefán Bergsson
Kennslutími: 8:30 - 9:50 á fimmtudögum.
Nemendafjöldi: 33
Grandaskóli var nokkuð sterkur skákskóli á árum áður. Engin annar en Helgi Árnason kenndi við skólann og Sigurður Páll Steindórsson (Íslansmeistari barna 1994) var nemandi við skólann.
Hinir rúmlega þrjátíu þriðjubekkingar eru afar áhugasamir í skáktímunum. Kennslan hefur gengið vel og mun skólinn senda lið til keppni á sveitakeppnir vetrarins.
Hinn sterki TR-ingur Gauti Páll Jónsson mun leiða skáksveit skólans og er afar glaður með að nú skuli hann loksins geta teflt í sveitakeppnum milli skóla en Gauti Páll er nemandi við 7. bekk skólans.





