Fossvogsskóli
Kennari: Magnús Pálmi Örnólfsson.
Kennslutími: 8:10 - 10:00 á fimmtudagsmorgnum.
Nemendafjöldi: 20-30.
Í Fossvogsskóla er boðið upp á skákkennslu fyrir nemendur þriðja og fjórða bekkjar. Kennslan fer fram á fimmtudagsmorgnum frá 8:10-10:00. Tuttugu til þrjátíu krakkar mæta á hverja æfingu. Helstu viðfangsefni kennslunnar eru skriflegar og verklegar æfingar sem tengjast hinum ýmsu þáttum skákarinnar. Kennslan er jafnt fyrir byrjendur sem og þá sem eru aðeins lengra komnir.





