Beint á leiđarkerfi vefsins
Skákakademía Reykjavíkur

Foldaskóli

Kennari: Björn Ívar Karlssonfolda

Kennslutími: 8:10-9:30 á þriðjudögum

Nemendafjöldi: Um 40 

Í Foldaskóla í Grafarvoginum er skákkennsla í 3. bekk. Tveir hópar 3. Bekkinga fá skákkennslu einu sinni í viku, 40 mínútur í senn. Áhugi nemenda er til fyrirmyndar og sjálfir bekkjakennararnir fylgjast áhugasamir með í kennslustundum. Áherslan í kennslunni hingað til hefur verið á grunnatriðin eins og mannganginn, almennar reglur skákarinnar og sitthvað fleira. Með tímanum og aukinni getu nemenda verða viðfangsefnin meira krefjandi og hafa nemendur þegar lært skákbyrjunir eins og ítalska leikinn og „trikkið með skrýtna nafnið“, eins og þau kölluðu það – heimaskítsmát. Skákakademían, sem stendur fyrir kennslunni, býður upp á skákkennslu í yfir 30 skólum á Reykjavíkursvæðinu og það er vonandi að nemendur Foldaskóla blandi sér í hóp þeirra bestu á Íslandsmóti Grunnskólasveita í vor.

Hefðbundin kennslustund fer þannig fram að kennari fer yfir efnið í upphafi tímans. Reynt er á kunnáttu nemenda með nokkrum þrautum eða umræða er kveikt um ákveðnar stöður. Í lok tímans er svo undantekningalaust teflt og hart barist!


Stjórnborđ

Minna letur Stćrra letur