Grunnskólar - 2011
19.12.2011
Jólafrí
23.11.2011
Skákkennsla hafin í Vogaskóla
Skákkennsla hófst í Vogaskóla miðvikudaginn 23. nóvember. Góð mæting var á fyrstu æfinguna en um 20 nemendur á öllum aldri mættu. Einna helst hefðu mátt sjást fleiri á unglingastigi en æfingin er opin öllum nemendum skólans.
20.11.2011
Leifur og Veronika byrjuđ ađ kenna í Melaskóla
1.11.2011
Skákfélag Vesturbćjarskóla stofnađ
28.10.2011
Skákćfingar ađ hefjast í Hólabrekkuskóla
Næstkomandi miðvikudag, þann 2. nóvember, hefjast skákæfingar í Hólabrekkuskóla. Skólinn ætlar í samvinnu
við Skákakademíu Reykjavíkur að bjóða nemendum í 1. - 7. bekk upp á skákkennsluna þeim að kostnaðarlausu. Fram kemur á vef Hólabrekkuskóla að löng og farsæl skákhefð sé innan skólans og henni sé vert að viðhalda. Kennarar á æfingunum verða Sævar Bjarnason, alþjóðlegur meistari í skák, og Björn Ívar Karlsson, skákkennari og starfsmaður Skákakademíunnar. Æfingarnar standa frá 14:30-15:30 alla miðvikudaga í allan vetur.
24.8.2011
Skákkennsla hafin í Hólabrekkuskóla og Hamraskóla
Skákkennsla hófst í dag í 3. bekkjum Hólabrekkuskóla og Hamraskóla. Áhugi var mikill í þessum hópum og gekk kennsla vel þrátt fyrir stóra árganga, sérstaklega í Hólabrekkuskóla. Þessir skólar virðast nokkuð vel útbúnir af skáksettum og borðum og gladdi það Björn Ívar, skákkennara, mikið að sjá skákborð á víð og dreif um ganga skólanna.
Kennslu verður áfram haldið út vikuna í flestum skólum Reykjavíkur og er þar með hafið skák-skólaárið 2011 hjá Skákakademíu Reykjavíkur!
5.4.2011
Rimaskóli sigrar á Reykjavíkurmóti - silfriđ í Vesturbćinn
Sigrum Rimaskóla fjölgar; Reykjavíkurmeistaratitill nú staðreynd. Sigur þeirra á Reykjavíkurmóti grunnskólasveita 2011 var afar öruggur. Sveitin missti aðeins niður 2.5 vinning af 28 mögulegum og fékk því alls 25.5 vinning. Sveitin var nær eins skipuð og á Íslandsmóti grunnskólasveita sem fór fram nýlega. Sveitina leiddi Dagur Ragnarsson, á öðru borði Oliver Aron Jóhannesson, á þriðja borði Jón Trausti Harðarson og á því fjórða Kristinn Andri Kristinsson.
3.4.2011
Rimaskóli Íslandsmeistari
Rétt á fimmta tug sveita tók þátt á Íslandsmóti barnaskólasveita sem fram fór í Rimaskóla um helgina. Að loknum fyrri keppnisdegi voru heimamenn í a-sveit Rimaskóla með nauma forystu á Álfhólsskóla - áður Hjallaskóla, og báru þessar sveitir af öðrum sveitum. Sveitirnar höfðu mæst í 5. umferð og skilið jafnar eftir hörkuviðureign. Í sjöttu og sjöundu umferð má segja að úrslit mótsins hafi ráðist. .
20.3.2011
Rimaskóli Íslandsmeistari grunnskólasveita
A-sveit Rimaskóla varð um liðna helgi Íslandsmeistari grunnskólasveita. Sigur skólans var einkar glæsilegur; aðeins 1.5 vinningur tapaðist. Helsti keppinautur skólans var Salaskóli, og ekki í fyrsta skipti sem þessir erkifjendur berjast um sigur í sveitakeppni.
23.2.2011
Skákkynning í Vogaskóla
Skákakademían stóð í dag fyrir skákkynningu í Vogaskóla. Skákkynningin var í samstarfi við Skákskóla Íslands en Þröstur Þórhallsson hélt fyrirlestur fyrir nemendur unglingadeildar um undirstöðuatriði skáklistarinnar. Það voru nær 50 nemendur sem hlýddur á fyrirlestur Þrastar og vöktu nokkur ungmenni athygli fyrir laglegar lausnir á þeim skákþrautum sem lagðar fyrir þau.
15.2.2011
Skákkennsla ađ hefjast í Suđurhlíđarskóla
9.2.2011
Rimaskólastelpur sigursćlar
Um helgina var mikið um að vera meðal efnilegustu skákstúlkna landsins þegar Íslandsmót grunnskóla í stúlknaflokki og Íslandsmót stúlkna einstaklingskeppni fóru fram laugardag og sunnudag. Ungar og bráðefnilegar stúlkur úr Rimaskóla komu, sáu og sigruðu alla þessa þrjá Íslandsmeistaratitla.





