Beint á leiđarkerfi vefsins
Skákakademía Reykjavíkur

Grunnskólar - 2010

20.5.2010

Vel heppnađ fjöltefli Ţrastar í Hólabrekku

Kennsla Skákakademíu Reykjavíkur í Hólabrekkuskóla hefur gengið með eindæmum vel þennan veturinn. Stefán Bergsson sinnir kennslunni en það er ekki síst Birnu Halldórsdóttur að þakka hversu vel hefur gengið. Sem dæmi um framtakssemi Birnu má nefna kökubasar sem haldinn var um daginn til styrktar skákstarfi skólans. Söfnuðust fleiri tugir þúsunda og verður allur ágóðinn nýttur í að kaupa skákklukkur handa skólanum. Sveitir skólans hafa náð verðlaunum í sveitakeppnum og meðlimir sveitarinnar látið að sér kveða í skólaskákinni og má þar helst nefna Dag Kjartansson í eldri flokki og Heimi Pál Ragnarsson í yngri flokki. 

29.4.2010

Skólaskákmeistarar Reykjavíkur krýndir!

Lokdagur Skólaskákmóts Reykjavíkur var æsispennandi en úrslit í báðum flokkum, eldri (8-10.bekkur) og yngri (1-7.bekkur) réðust í einvígum. Örn Leó Jóhannsson úr Laugalækjaskóla varð Skólaskákmeistari Reykjavíkur í eldri flokki og Dagur Ragnarsson úr Rimaskóla bar sigur úr býtum í yngri flokki.

21.4.2010

Eysteinn Högnason skólaskákmeistari Fossvogsskóla

Skólaskákmót Fossvogsskóla 2010 var haldið þriðjudaginn 20. apríl. Á mótið voru mættir ungir skákmenn sem hafa allir teflt fyrir skólans hönd á þessum vetri. Þeir hafa allir verið duglegir að mæta á skákæfingar í Fossvogsskóla sem eru haldnar á vegum Skákakademíu Reykjavíkur í samstarfi við skólann.

13.4.2010

Selásskóli í sókn

Selásskóli í sókn
Um þessar mundir er mikill kraftur í skólaskákmótunum. Skólaskákmót Reykjavíkur fer fram 26. og 27. apríl og eru reykvísku skólarnir í óða önn að halda meistaramót sín. Meistari hvers skóla er svo sendur á Skólaskákmót Reykjavíkur auk þess sem einstaka sterkir skólar fá úthlutað fleiri sætum fyrir sína sterkustu skákmenn. Skólaskákmót Reykjavíkur verður í höndum Skákakademíunnar og er Stefán Bergsson mótsstjóri.

Stjórnborđ

Minna letur Stćrra letur