Beint á leiđarkerfi vefsins
Skákakademía Reykjavíkur

Grunnskólar - 2009

25.11.2009

Kennt í 18 skólum á haustönn, yfir 1.200 nemendur!

Á haustönn 2009 hefur kennsla verið í gangi í 18 grunnskólum í Reykjavík og hefur starfið gengið afskaplega vel. Fyrirkomulagið er mismunandi eftir hverjum skóla fyrir sig og er í raun má segja að starfið sé aðlagað að þörfum skólans. 

29.5.2009

Skákstarf í fjórum skólum í Grafarvogi

Bragi Þorfinnsson, greinarhöfundurSkákkennsla í nokkrum skólum í Grafarvogi hófst á vorönn 2009. Kennsla fór fram í Borgaskóla, Engjaskóla, Korpuskóla og Víkurskóla. Þess má geta að í Korpuskóla og Víkurskóla hafði aldrei áður verið skipulögð skákkennsla í gangi og því var það einkar spennandi að hefja kennslu þar. Skólastjórarnir voru mjög jákvæðir gagnvart verkefninu og það var ánægjulegt að hefja kennsluna í vinalegu og uppbyggilegu andrúmslofti. Kennslan var með ólíku sniði innan skólanna og ákveðin í samráði og samvinnu við skólastjórnendur og kennara. Til að byrja með voru skráningarlistar látnir ganga í bekki til að kanna áhugann hjá krökkunum.

14.5.2009

Skákakademía Reykjavíkur - mikill styrkur fyrir skákstarfiđ í Rimaskóla

Ingvar við kennsluŢað voru miklar væntingar gerðar til Skákakademíu Reykjavíkur við stofnun hennar fyrir tæpu ári. Hrafn Jökulsson skákfrömuður hafði barist fyrir þessu hugsjónarmáli sínu og öðlast fullan skilning borgarfulltrúa og forráðamanna öflugra fyrirtækja fyrir verkefninu. Skákstarf í skólum borgarinnar skyldi endurvakið og viðburðir eins og  Reykjavík Open haldnir árlega.

6.5.2009

Skákstarfiđ í Ísaksskóla

isaksskoli7Skákakademía Reykjavíkur hóf skákkennslu í Ísaksskóla snemma í haust. Viðbrögð skólastjórnenda voru framúrskarandi jákvæð strax í byrjun og því hófst starfið af krafti. Skráningarlistar voru látnir ganga í bekkjum skólans og að lokinni skráningu höfðu rúmlega 100 krakkar skráð sig í skáktíma. Í ljósi þessa mikla áhuga var brugðið á það ráð að skipta nemendunum upp í þrjá hópa og hefur undirritaður því mætt þrisvar í viku í skólann í allan vetur og frætt 5-9 ára gamla krakka um leyndardóma skáklistarinnar.


Stjórnborđ

Minna letur Stćrra letur