Beint á leiđarkerfi vefsins
Skákakademía Reykjavíkur

Dalskóli

Kennari: Björn Ívar Karlsson

Kennslutími: Mánudagar, 10:00-11:55

Nemendafjöldi: Um 40 

Í Dalskóla í Grafarholti fer skákkennsla fram í 3. bekk. Nemendurnir eru fjölmargir og er þeim skipt niður í nokkra hópa. Hver hópur hefur u.þ.b. 40 mínútur í hverjum skáktíma. Áhuginn er mikill hjá þessum ungu nemendum og augljóst er að margir þeirra hafa áður lært sitthvað í skáklistinni. Áherslurnar í skákkennslunni hingað til hafa verið grunnatriðin eins og manngangurinn og almennar reglur skákarinnar en einnig atriði eins og hrókering, hótun og völdun, dráp, skák og mát og margt fleira. Margir nemendur hafa gaman af tengingu skákarinnar við her og herkænsku. Markmið Skákakademíunnar í skákkennslunni í vetur er að kveikja áhuga allra á skáklistinni en einnig að kenna og hvetja börnin til þess að taka þátt í skákmótum fyrir börn. Rannsóknir hafa sýnt fram á að þeir sem stunda skák standa almennt betur að vígi þegar kemur að öðrum námsgreinum. Það er því allt sem bendir til þess að sé björt framtíð í skákinni hjá nemendum Dalskóla!

 


Stjórnborđ

Minna letur Stćrra letur