Beint á leiđarkerfi vefsins
Skákakademía Reykjavíkur

Breiđagerđisskóli

Kennari: Björn Ívar Karlssonbreida

Kennslutími: Mánudagar, 12:25-13:45

Nemendafjöldi: Um 40

Í Breiðagerðisskóla í Fossvoginum er boðið upp á skákkennslu í 3. bekk. Eins og í flestum öðrum skólum Reykjavíkursvæðisins er það Skákakademía Reykjavíkur sem býður nemendum skólanna upp á skákkennslu. Nemendur þriðja bekkjar eru virkilega áhugasamir um skákina. Þeir eru duglegir að spyrja og leita ráða en eru einnig með svör á reiðum höndum ef lögð eru fyrir þau verkefni. Nemendahópurinn er nokkuð stór og er honum skipt í tvo minni hópa. Hvor hópur fær 40 mínútna kennslustund í hverri viku sem þau nýta vel. Áherslurnar í kennslunni hingað til hafa verið grunnatriði skákarinnar eins og manngangurinn og almennar reglur. Mörgum nemendum finnast margar þeirra reglna sem fylgja skákinni merkilegar eins og það að takast eigi í hendur í upphafi skákar. Einnig hafa nemendur veitt því athygli að nafngiftir á ýmsum atriði er tengjast skákinni koma spánskt fyrir sjónir. Orð eins og hótun, völdun, heimaskítsmát og peðagaffall hafa vakið lukku en jafnframt valdið því að í hverjum tíma læra nemendur eitthvað nýtt í skáklistinni. Með slíkan áhuga eins og nemendur Breiðagerðisskóla sýna má vænta mikils af þeim í framtíðinni!


Stjórnborđ

Minna letur Stćrra letur