Beint á leiđarkerfi vefsins
Skákakademía Reykjavíkur

Borgaskóli

Kennari: Björn Ívar Karlsson

Kennslutími: 10:00-11:20 á þriðjudögum

Nemendafjöldi: um 25 

Í Borgaskóla í Grafarvoginum býður Skákakademía Reykjavíkur nemendum í 3. bekk upp á skákkennslu einu sinni í viku. Kennslustundin er 80 mínútur og hópurinn samanstendur af um 20 nemendum. Það kom skákkennara Skákakademíunnar skemmtilega á óvart hversu mikil kynni nemendur höfðu haft af skák áður en kennsla hófst. Margir þeirra kunna töluvert fyrir sér í skáklistinni. Áhuginn er einnig mikill og keppast nemendur um að svara þeim spurningum og verkefnum sem fyrir þá eru lögð. Viðfangsefnin í upphafi skólaársins hafa verið grunnatriði skákarinnar, eins og manngangurinn, almennar reglur og svo eitt og annað eins og skákbyrjunarfræði. Ungir nemendur hafa gaman að því að geta lagt gildrur fyrir andstæðinginn og fer því vel á að kynna þá fyrir hinum ýmsu brellum sem til eru í skáklistinni. Borgaskóli er einn af rúmlega 30 skólum Reykjavíkursvæðisins sem býður nemendum sínum upp á skákkennslu fyrir tilstilli Skákakademíunnar. Það er vonandi að sem flestir nemendur skólans blandi sér í báráttuna á skákborðinu í framtíðinni en fyrst og fremst að þeir hafi gaman að.


Stjórnborđ

Minna letur Stćrra letur