Barnaskóli Hjallastefnunnar
Kennari: Björn Ívar Karlsson
Kennslutími: Föstudagar, 10:00-12:00
Nemendafjöldi: Um 100
Í Barnaskóla Hjallastefnunnar, við Nauthólsvík, er mikill skákáhugi. Margir af nemendum skólans fengu skákkennslu á leikskóla og áhuginn hefur viðhaldist og aukist ef eitthvað er! Árgangarnir skipta með sér kennslutímunum og er stefna skólans að sem flestir fái að kynnast töfrum skákarinnar. Áherslan í kennslunni í vetur er og verður á grunnatriði skákarinnar en einnig á sögu hennar og kosti. T.d. hvað græðum við á því að kunna að tefla? Svörin við þessari spurningu gætu verið; við þróum með okkur ákvörðunartöku, við bætum skilning og útreikning og við verðum skipulagðari. Þetta eru atriði sem nýtast ekki eingöngu í skáklistinni heldur í lífinu sjálfu.





