Grunnskólar
20.5.2010
Vel heppnađ fjöltefli Ţrastar í Hólabrekku
Kennsla Skákakademíu Reykjavíkur í Hólabrekkuskóla hefur gengið með eindæmum vel þennan veturinn. Stefán Bergsson sinnir kennslunni en það er ekki síst Birnu Halldórsdóttur að þakka hversu vel hefur gengið. Sem dæmi um framtakssemi Birnu má nefna kökubasar sem haldinn var um daginn til styrktar skákstarfi skólans. Söfnuðust fleiri tugir þúsunda og verður allur ágóðinn nýttur í að kaupa skákklukkur handa skólanum. Sveitir skólans hafa náð verðlaunum í sveitakeppnum og meðlimir sveitarinnar látið að sér kveða í skólaskákinni og má þar helst nefna Dag Kjartansson í eldri flokki og Heimi Pál Ragnarsson í yngri flokki.
29.4.2010
Skólaskákmeistarar Reykjavíkur krýndir!
21.4.2010
Eysteinn Högnason skólaskákmeistari Fossvogsskóla
13.4.2010
Selásskóli í sókn
25.11.2009
Kennt í 18 skólum á haustönn, yfir 1.200 nemendur!
29.5.2009
Skákstarf í fjórum skólum í Grafarvogi
14.5.2009
Skákakademía Reykjavíkur - mikill styrkur fyrir skákstarfiđ í Rimaskóla
Ţað voru miklar væntingar gerðar til Skákakademíu Reykjavíkur við stofnun hennar fyrir tæpu ári. Hrafn Jökulsson skákfrömuður hafði barist fyrir þessu hugsjónarmáli sínu og öðlast fullan skilning borgarfulltrúa og forráðamanna öflugra fyrirtækja fyrir verkefninu. Skákstarf í skólum borgarinnar skyldi endurvakið og viðburðir eins og Reykjavík Open haldnir árlega.
6.5.2009
Skákstarfiđ í Ísaksskóla
Skákakademía Reykjavíkur hóf skákkennslu í Ísaksskóla snemma í haust. Viðbrögð skólastjórnenda voru framúrskarandi jákvæð strax í byrjun og því hófst starfið af krafti. Skráningarlistar voru látnir ganga í bekkjum skólans og að lokinni skráningu höfðu rúmlega 100 krakkar skráð sig í skáktíma. Í ljósi þessa mikla áhuga var brugðið á það ráð að skipta nemendunum upp í þrjá hópa og hefur undirritaður því mætt þrisvar í viku í skólann í allan vetur og frætt 5-9 ára gamla krakka um leyndardóma skáklistarinnar.
13.11.2008
Veronika Steinnunn - Skákmeistari Melaskóla
Meistaramót Melaskóla fór fram 14.nóvember í hátíðarsal skólans. Skráningarblöð í mótið höfðu gengið um stofur skólans undanfarna viku og þegar upp var staðið höfðu 86 krakkar í 4-7.bekk skráð sig til leiks. Sannarlega glæsileg þátttaka.





