Beint á leiđarkerfi vefsins
Skákakademía Reykjavíkur

Hilmir Freyr sigurvegari á MS Jólaskákmótinu - Fréttir

19.12.2011

Hilmir Freyr sigurvegari á MS Jólaskákmótinu

Hilmir Freyr Heimisson, 10 ára, sigraði á Jólaskákmóti MS og Skákakademíu Reykjavíkur í Ráðhúsi Reykjavíkur.

Mótið var æsispennandi og bráðskemmtilegt, enda mörg af efnilegustu börnum landsins meðal keppenda.

 Hilmir Freyr hlaut 7 vinninga í 8 skákum. Vignir Vatnar Stefánsson, 8 ára, og Nansý Davíðsdóttir, 9 ára, hlutu jafnmarga vinninga og Hilmir Freyr, en voru örlítið lægri á stigum. Keppendur voru rúmlega 70, á aldrinum 6 til 12 ára.
 
Sérstök verðlaun voru veitt fyrir bestan árangur í hverjum árgangi og þau verðlaun hrepptu Joshua Davíðsson, Bassirou Mbaye, Vignir Vatnar Stefánsson, Nansý Davíðsdóttir, Hilmir Freyr Heimisson, Jón Otti Sigurjónsson og Kristófer Jóel Jóhannesson.
 
Verðlaun fyrir bestan árangur stúlkna hlutu Nansý, Hildur B. Jóhannsdóttir og Svandís Rós Ríkharðsdóttir.
 
Samhliða MS Jólaskákmótinu bauð Hjörvar Steinn Grétarsson, yngsti landsliðsmaður Íslands, gestum og áhorfendum í Ráðhúsinu í fjöltefli. Hjörvar Steinn er 18 ára og náði á dögunum tveimur áföngum af þeim þremur sem þarf til að verða stórmeistari í skák. 
 
Guðni Ágústsson fv. ráðherra flutti setningarávarp og lék fyrsta leikinn. Guðni hvatti börnin til dáða í skákinni, enda væri skáklistin frábærlega til þess fallin til að þjálfa heilann og hefði góð áhrif á námsgetu.  Ráðherrann fyrrverandi, sem er sjálfur snjall skákmaður, gaf börnunum þrjú heilræði: Taka lýsi, drekka mjólk og borða lambakjöt!

MS Jólaskákmótið í Ráðhúsinu heppnaðist í alla staði vel og sýndi vel þá grósku sem er í skáklífi ungu kynslóðarinnar.

Mjög vegleg verðlaun voru veitt og margir keppendur unnu líka í happdrætti mótsins. Vinningar og verðlaun komu frá Heimilistækjum Eddu útgáfu, Borgarleikhúsinu, Bjarti, Sögum útgáfu, Steineggi, Sölku, Senu, 12 tónum, Nexus, Pennanum, Óðinsauga, ÍTR,  Húsdýragarðinum.




Stjórnborđ

Minna letur Stćrra letur