Sumarnįmskeišum lokiš - vetrarstarf aš hefjast - Fréttir
1.9.2010
Sumarnįmskeišum lokiš - vetrarstarf aš hefjast
Sumarnámskeiðum Skákakademíunnar lauk fyrir 2 vikum. Fullyrða má að þeir 40 nemendur sem sóttu námskeiðin hafi sjaldan eða aldrei verið jafn vel undirbúnir í harðan skákvetur eins og nú er raunin.
Fyrsta mót vetrar er nú í fullum gangi. Á Meistaramóti Hellis tefla nú 40 skákmenn og er það næstbesta þátttakan frá upphafi þess móts. Af þeim 40 keppendum er nær helmingur ungir skákmenn sem sóttu námskeiðin í sumar.
Žessir skákmenn eiga án efa eftir að láta mikið að sér kveða í vetur; á barna og -unglingamótum sem á opnum mótum með reyndum og sterkum skákmönnum.
Vetrarstarf Skákakademíunnar er smám saman að fara í gang. Eins og síðasta vetur mun Skákakademían einbeita sér að mestu að kennslu í grunnskólum borgarinnar sem og að koma að barna og -unglingastarfi taflfélaganna í borginni.
Fyrirkomulag kennslunnar í grunnskólunum mun þó taka einhverjum breytingum frá síðasta vetri enda starfssemi félagsins í stöðugri þróun. Aðaláherslan verður þó sú sama; að breiða út fagnaðarerindið meðal grunnskólanemenda Reykjavíkur.





