Beint į leišarkerfi vefsins
Skįkakademķa Reykjavķkur

Nįmskeiš hįlfnuš - og gott betur.. - Fréttir

20.7.2010

Nįmskeiš hįlfnuš - og gott betur..

Nú eru námskeið sumarsins hálfnuð og gott betur en það. Námskeiðin standa yfir í 10. vikur og nú er 6. vikan í gangi. Á námskeiðunum eru 5 flokkar; Unglingaflokkur, laugamelaflokkur, strákaflokkur, stelpuflokkur og barnaflokkur. Laugamelaflokkurinn dregur nafn sitt af Laugalækjarskóla og Melaskóla; uppistaðan í þeim hópi er skipuð efnilegum skákmönnum sem koma úr þessu sterku skákskólum. Flestir eru drengirnir frá 10-13 ára gamlir og mæta tvisvar í viku - 2 tíma í senn. Björn Þorfinnsson og Stefán Bergsson sjá um kennsluna.

Unglingaflokkinn skipa skákkrakkar á aldrinum 12 - 16 ára og meðal þeirra eru Íslandsmeistarar Sala- og Rimaskóla. Hjörvar Steinn Grétarsson var fenginn til liðs við Skákakademíuna og veitir þessum efnilegu skákmönnum verðug verkefni alla miðvikudaga og föstudaga - 2 tíma í senn. Kennsla Hjörvars hefur gengið vel en mæting nokkurra efnilegustu skákmanna landsins mætti vera betri.

Strákaflokkinn skipa sex efnilegir drengir á aldrinum 7-10 ára. Björn og Stefán hafa sinnt kennslunni sem fer fram á þriðjudögum en einnig mæta drengirnir á miðvikudagskvöldum og tefla hraðskákir við sterka og reynda skákmenn. Skákkvöldin á miðvikudagskvöldum hafa heppnast sérstaklega vel og er stefnt á að fjölga þeim og bjóða upp á þau fyrir fleiri en einungis strákaflokkinn.

Nær allar efnilegustu skákstúlkur landsins eru í stelpuflokknum. Um er að ræða sterkan kjarna stúlkna sem eru flestar fæddar á árunum 97-98. Þessar stúlkur byrjuðu í Skákskólanum í vetur þegar framhaldsflokkur stúlkna var settur á laggirnar við skólann. Rétt eins og þá sér Stefán Bergsson um kennslu stúlknanna - sem mæta tvisvar í viku. Næsta verkefni þeirra er Íslandsmót kvenna í b - flokki sem fer fram í ágúst.

Ķ barnaflokkinn var boðið þeim krökkum sem hafa verið hvað áhugasömust í skólum Skákakademíunnar. Björn Þorfinnsson hefur séð um kennslu barnanna sem mæta einu sinni í viku.

 Alls eru rúmlega 40 efnilegir skákkrakkar í þessum 5 flokkum. Við kennsluna hefur verið notast við bækur Arthurs Jussupows - Build up your Chess - 1,2, og 3. Bækur hans mynda heildstætt kennslukerfi - hver kafli er yfirleitt ein kennslustund.

Žegar kennslunni lýkur um miðjan ágúst munu krakkarnir taka stutt hlé frá taflmennsku. Skákveturinn hefst svo í september og mun Skákakademían taka þátt í skipulagningu á áframhaldandi skákþjálfun krakkanna. Mun sú skipulagning verða unnin í samstarfi við Skákskóla Íslands og taflfélög borgarinnar.

SSB

 




Stjórnborš

Minna letur Stęrra letur