Stefán Ţór sigurvegari á ţriđja Sumarmóti Skákakademíunnar og Vinnuskólans - Fréttir
5.7.2010
Stefán Ţór sigurvegari á ţriđja Sumarmóti Skákakademíunnar og Vinnuskólans
Ţriðja mótið í sumarmótaröð Vinnuskólans og Skákakademíunnar fór fram síðastliðinni miðvikudag. Veðrið ákvað að skarta ekki sínu fegursta í þetta skiptið en þrátt fyrir það mættu 37 keppendur til leiks. Þegar yfir lauk höfðu 39 keppendur spreytt sig því tveir erlendir ferðamenn komu aðvífandi í lok mótsins og fengu að spreyta sig í síðustu umferðunum.
Krakkar úr úrvalsnámskeiðum Skákakademíunnar settu sem endranær mikinn svip á mótið og fannst þeim yngstu sérstaklega skemmtilegt að máta "fullorðna fólkið" í Vinnuskólanum!
Að loknum 5.umferðum stóð Davíð Kjartansson uppi sem sigurvegari með fullt hús vinninga en næstir honum komu nafnarnir, Stefán Þór Sigurjónsson og Stefán Bergsson. Skorið var úr um hver myndi tefla úrslitaskákina við Davíð með mælingu á andlegu atgervi. Hafði Stefán Þór sigur.
Úrslitaskákin var æsispennandi. Stefán Þór hóf aðgerðir á kóngsvæng en Davíð varðist fimlega. Tók þessi sókn talsvert af þreki keppenda enda þýða slíkar æfingar mun meiri hlaup en ella (meiri fjarlægð frá skákklukkunni). Staðan á skákborðinu var farin að líta illa út fyrir Stefán en þegar tíminn var orðinn afar naumur hóf hann massífar tilfæringar á a - og b-peðum sínum við mikla kátínu áhorfenda. Davíð var ekki viðbúinn þessum gambít, svaraði þó með nokkrum a-peðsleikjum en truflaðist svo og hljóp yfir á kóngsvæng sem kostaði hann of mikinn tíma og hann féll á tíma að lokum. Stefán Þór Sigurjónsson var því sigurvegari þriðja sumarskákmótsins og hlaut að launum gjafabréf frá Gömlu Smiðjunni. Davíð Kjartansson var of búinn á því eftir ósigurinn til að taka við sínum verðlaunum og því hlaut Birkir Karl Sigurðsson, stigahæsti skákmaðurinn sem hlaut 4 vinninga, gjafabréf frá Hamborgarabúllunni. Stefán Bergsson sem hlaut 4,5 vinninga gleymdist í verðlaunaafhendingunni. Kvennaverðlaunin hlaut Sigríður Björg Helgadóttir og hlaut hún 4 vinninga.
Krakkaverðlaunin hlutu eftirtaldir pjakkar: Róbert Leó Jónsson, Davíð Kolka, Vignir Vatnar Stefánsson og Sigurður Kjartansson.
Mesta mannvera mótsins var messadrengurinn Thiru sem starfar á skemmtiferðarskipi sem lagði við Reykjavíkurhöfn og var hann að skoða höfuðborgina í fyrsta sinn. Var þátttaka hans fallegt dæmi um alþjóðlegt samstarf.
Skákstjórn var í öruggum höndum Björns Þorfinnssonar sem hélt utan um mótshaldið í forlátri stílabók. Allt gekk upp í þeirri mótstöflu nema að Magnús Matthíasson gleymdist í síðustu umferð og þurfti hann að tefla síðustu umferðina á neðsta borði. Sú staðsetning fór honum ágætlega.
Fjórða og síðasta sumarmótið fer fram miðvikudaginn 7.júlí næstkomandi kl.12.30 við útitaflið. Gert er ráð fyrir yfir 50 keppendum. Næg bílastæði.
Nefndin