Bragi sigurvegari á öðru Sumarmóti Akademíunnar og Vinnuskólans - Fréttir
29.6.2010
Bragi sigurvegari á öðru Sumarmóti Akademíunnar og Vinnuskólans
Skákmótin eru liður í fræðslustarfi Vinnuskóla Reykjavíkur í að vekja áhuga unglinganna á skáklistinni, miðbæjarlífið og glæða bæinn mannlífi. Viðburðir sem þessi vekja óskipta athygli erlendra ferðamanna og gesta borgarinnar sem eiga leið hjá, og myndast því mjög skemmtileg stemmning í kringum mótin. Gunnar Björnsson forseti Skáksambands Íslands og Helgi Árnason skólastjóri Rimaskóli heiðruðu samkomuna með nærveru sinni.
Mótið var afar spennandi og til úrslita tefldu alþjóðlegi meistarinn Bragi Þorfinnsson og hinn síkáti Haukamaður Ingi Tandri Traustason, skákin fór að sjálfsögðu fram á útitaflinu og var tefld 5 mínútna hraðskák þar sem Ingi fékk að velja sér hvorum litnum hann vildi stýra. Skákin endaði með nokkuð öruggum sigri Braga eftir að Ingi hafði leikið af sér hverjum manninum og fætur öðrum.
Sigurvegari fyrsta mótsins Stefán Bergsson tók að sér að stýra skútunni í þessu móti og gerði það sennilega betur en sjálfur Jack Sparrow.
Röð efstu manna :
1. Bragi Þorfinnsson
2. Ingi Tandri Traustason
3. Róbert Lagerman
4. Kristófer Jóel Jóhannesson
5. Sigríður Björg Helgadóttir
6. Davíð Kjartansson
7. Kristinn Andri Kristinsson
Bragi fékk að launum gjafakörfu frá Kaffitár enda kaffikall mikill, Ingi Tandri fékk pizzuveislu frá The Deli og Sigríður Björg sem hlaut kvennaverðlaun fékk hið forláta gjafabréf á Hamborgarabúllu Tómasar. Nokkrir ungir og efnilegir leikmenn fengu svo fótboltaspil fyrir góðan árangur í mótinu.





