Beint á leiðarkerfi vefsins
Skákakademía Reykjavíkur

Viðtal við Sigurbjörn bóksala - Fréttir

9.6.2010

Viðtal við Sigurbjörn bóksala

BóksalinnSigurbjörn Björnsson er flestum skákmönnum vel kunnur. Hann hefur í yfir áratug verið einn af sterkari og virkari skákmönnum Íslands og náð góðum árangri á mótum innanlands, t.d. Skákþingi Reykjavíkur sem hann hefur unnið oftar en einu sinni. Síðastliðinn vetur hóf Sigurbjörn innflutning á skákbókum, við sérstaklega góðar undirtektir skákheims.

Fréttadeild Skákakademíunnar tók bóksalann tali.

  • 1. Bjóstu við þessum viðtökum? Voru ekki efasemdarraddir áður en þú lagðir í þetta?

Nei, ég get ekki sagt að ég hafi átt von á svona góðum viðtökum og má segja að hlutirnir hafi gengið mun hraðar fyrir sig heldur en ég þorði að vona.  Aftur á móti voru engar efasemdaraddir með þetta því ég sagði engum frá þessari hugmynd fyrr en hún var komin til framkvæmda og strax og ég kynnti þetta voru menn mjög ánægðir.

  • 2. Hvað hefurðu selt marga titla og hve mörg eintök?

Núna hef ég selt ca. 420 bækur og ca 90. titla og fer titlunum fjölgandi með hverri pöntun.

  • 3. Hverjar eru mest seldu bækurnar og hve margar af hvaða titli?

Mest selda bókin hingað til er GM Repertoire 2, 1. d4 volume 2 eftir GM Boris Avrukh.  Þar er á ferðinni bók sem var mikið beðið eftir, 616 blaðsíður uppfull af afbrigðum og tæplega 1000 nýjungum!  Svo hafa bækur einsog Beating the Open Games eftir GM Mihail Marin og Play the Queens Gambit eftir GM Lars Schandorff selst vel og núna nýlega hefur bókin Dismantling the Sicilian eftir GM Jesus de la Villa selst vel enda góð bók þar á ferðinni.  Auk þessara eru nokkrir titlar sem hafa selst álíka vel og þær sem ég nefni.

  • 4. Hvers eðlis eru vinsælustu bækurnar?

Ég myndi segja að vinsælustu bækurnar séu byrjanabækur, enda vilja flestir læra meira um byrjanirnar sem þeir tefla og einnig getur verið gott að vera með nokkrar nýjar byrjanabækur meðferðis þegar mót eru framundan því vanalega les maður þær ekki frá upphafi til enda heldur tekur ákveðin afbrigði fyrir.  Svo er ég með ansi breitt úrval af miðtaflsbókum og fara þær alltaf jafnt og þétt út ásamt endataflsbókunum.  Svo eftir að ég fór að kaupa af New in Chess hafa bæst við mjög svo skemmtilegar lesbækur, bækur þar sem er nánast eingöngu gert út á lesefni, en menn eiga enn eftir að uppgötva þær!

  • 5. Hvaða skákmaður hefur keypt flestar bækur og hve margar?

Ég held að það sé klárlega Ingvar okkar Jóhannesson, hann hefur keypt u.þ.b. 25 bækur og er hvergi nærri hættur!

  • 6. Hvaða skákfélag/skákstofnun hefur keypt flestu bækurnar?

Skákakademía Reykjavíkur hefur verið dugleg að kaupa bækur og gefa í verðlaun og einnig hefur Skáksambandið og Skákskólinn farið þá leið.  Það er mjög góð leið að gefa ungum skákmönnum bækur í verðlaun, þeir læra svo mikið af því að lesa skákbækur og það skilar sér yfirleitt fljótt í miklum stigahækkunum.  Man að ég sjálfur stúderaði New in Chess árbækur á fullu eitt sumarið og fór úr 1900 stigum í 2100 veturinn á eftir.  Meðal þess sem ég stúderaði þetta sumarið var Kóngsindverjinn og að tefla gegn franskri vörn, bjó svo að því í mörg ár á eftir, en mætti gjarnan fara að kíkja á þessar byrjanir aftur!

  • 7. Hvernig skákmenn eru að kaupa bækurnar, ungir eða gamlir? Stigaháir eða stigalágir? Virkir eða óvirkir?

Ég held að stigalægsti skákmaðurinn sem hefur keypt af mér losi 1200 stig og sá hæsti sé með tæplega 2600.  Svo eru margir sem kaupa bækur sem tefla lítið, en hyggjast kannski breyta því.  Algengast er að virkir skákmenn kaupi og algengasta stigabilið er 1600-2450 sem er reyndar ansi breitt bil. 

  • 8. Nú hefurðu selt margar bækur og salan orðið ágætis fyrirtæki sem slíkt. Ertu farinn að hafa tekjur af sölunni sem tekur að nefna?

Nei, ég er enn öfugu megin við núllið, en það stafar aðallega af því að í hvert skipti sem ég nálgast núllið fer ég í nýja pöntun.  Ég legg mikla áherslu á að hafa sem best úrval og er ekki að gera mér vonir um að hafa einhverjar sérstakar tekjur af þessu, a.m.k. ekki svona til að byrja með.

  • 9. Hefurðu hug á frekari innflutningi á skákvörum?

Það má vera, mér býðst að flytja inn vönduð skáksett, meðal annars Staunton sett og einnig klukkur.  Ef ég finn að það er áhugi fyrir því þá fer ég örugglega út í það, en ég mun ekki gera það nema að vandlega íhuguðu máli.

  • 10. Nú hefurðu einokunarstöðu á skákbókamarkaðnum á Íslandi. Ertu undirbúinn fyrir samkeppni og hvernig myndirðu taka henni?

Ég hef nú ekki mikið hugsað um að einhver annar fari í samkeppni við mig á þessu sviði, en ef það gerist þá mun ég bara skoða hverju það mun breyta.  Ég get þó verið ánægður með að verðið á bókunum hefur lækkað með hækkandi gengi krónunnar og munu þær lækka enn meir í framtíðinni ef krónan heldur áfram að styrkjast. 

  • 11. Hefur bóksalan haft áhrif á þig sem skákmann?

Já, ég hef mikinn áhuga núna á skákinni og skáksögunni og reyni að stúdera eins og ég get.  Get ekki kvartað undan skort á bókum, enda er ég búinn að eigna mér einhverjar 15 bækur og vonandi næ ég að bæta mig við að lesa þær.

  • 12. Hvaða forlög er stærst í þessum bransa? Hvaða forlög eru vinsælust hjá íslenskum skákmönnum?

Ég veit ekki alveg hvaða forlög eru stærst, ætli það séu ekki Gambit og Everyman Chess, en ég myndi segja að Quality Chess sé besta forlagið.  Bækurnar þeirra eru gríðarlega vandaðar og vel upp settar, einnig má ég til með að nefna að bækurnar frá búlgarska forlaginu Chess-Stars eru mjög vandaðar og svo má auðvitað ekki gleyma New in Chess sem gefur út mjög fjölbreyttar bækur og góðar.

Bækur frá Quality Chess hafa verið vinsælastar hjá mér hingað til og einnig hafa Gambit bækurnar verið vinsælar.

  • 13. Eru höfundar bókanna atvinnumenn í skákbókaskrifum?

Einhverjir höfundar vinna nánast eingöngu við að skrifa skákbækur, en flestir eru þeir að tefla líka, eins og t.d. Mihail Marin og Boris Avrukh.

  • 14. Heimildir fréttadeilar Skákakademíunnar herma að einn sterkasti virki skákmaður landsins eigi yfir 400 skákbækur. Myndirðu segja að menn geti þróað með sér söfnunaráráttu gagnvart skákbókum?

Já, menn geta klárlega fengið mikla söfnunaráráttu fyrir skákbókum og það eru nokkrir einstaklingar sem ég skilgreini sem skákbókafíkla.  Þeir sýna öll einkennin þegar þeir nálgast bækurnar, byrja að skjálfa, kaupa nokkrar bækur og biðja svo alltaf um meira!

  • 15. Að lokum er ekki úr vegi að bóksalinn upplýsi hver sé hans eftirlætis skákbók?

Þessi er mjög erfið, ég hef alltaf haldið mjög mikið upp á Secrets of Modern Chess Strategy og Road to Chess Improvement, en af nýrri bókum má nefna Beating the Open Games, Dismantling the Sicilian og svo framvegis og svo framvegis!  Svo verð ég að nefna eina sem seldist reyndar strax upp hjá mér og ég verð að panta sem fyrst aftur, en það er bókin From London to Elista eftir Bareev og Levitov en hún fjallar um einvígin þrjú hjá Kramnik gegn Kasparov, Leko og Topalov.  Virkilega gaman að fá þessar frásagnir úr innsta hring, /SSB




Stjórnborð

Minna letur Stærra letur