Beint á leiðarkerfi vefsins
Skákakademía Reykjavíkur

Vel sóttur Vesturbæjarbiskup - Fréttir

17.5.2010

Vel sóttur Vesturbæjarbiskup

Laugardaginn 15. maí fór fram skákmótið Vesturbæjarbiskupinn og var teflt í safnaðarheimili Neskirkju. Mótið var fyrst haldið í fyrra og fór því nú fram í annað sinn. Að þessu sinni voru um 40 skákmenn mættir til leiks á aldrinum 6-16 ára og var teflt í fjórum flokkum. Skákmennirnir eiga það allir sameiginlegt að koma úr Vesturbænum og er Vesturbæjarbiskupinn 2010 enn ein staðfesting á þeim rísandi skákáhuga sem er vestur í bæ.

Tefldar voru 5 umferðir með 7 mínútna umhugsunartíma.

1.-2. Bekkur

1. Ísafold Kristín Halldórsdóttir - Landakotsskóli 5 V.

2. Ólafur Snorri Rafnsson - Grandaskóli 4 V.

3. Bryndís Líf Bjarnadóttir - Melaskóli 3 V.

3.-4. Bekkur 

1. Smári Arnarson - Melaskóli 5 V.

2. Hákon Rafn Valdimarsson - Melaskóli 4 V.

3. Oddur Stefánsson - Ísaksskóli 3 V.

5.-7. Bekkur

1. Gauti Páll Jónsson Grandaskóli - 5 V.

2.-4. Dagur Logi Jónsson Melaskóli - 4 V.

2.-4. Veronika Steinunn Magnúsdóttir - Melaskóli 4 V.

2.-4. Fannar Skúli Birgisson - Melaskóli 4 V.

8.-10. Bekkur

1. Sindri Ingólfsson - Hagaskóli 4 V.

2-3. Mikael Luis Gunnlausson - MR  3 V.

2-3. Ólafur Örn Haraldsson - Hagaskóli 3 V.

Frumkvæði að mótinu hafði formaður hverfaráðs Vesturbæjar Vala Ingimarsdóttir. Þjónustumiðstöð Vesturbæjar sá um undirbúning og kynningu á mótinu. Auk þessara aðila má nefna hlut foreldra í mótinu og má þá helst nefna formann foreldrafélags Grandaskóla Maríu Helenu Sarabia. Framkvæmd mótsins var svo í höndum Skákakademíu Reykjavíkur.

Að móti loknu veitti Kjartan Magnússon formaður menntaráðs Reykjvíkur sigurvegurunum glæsilega bikara auk þess sem allir keppendur fengu verðlaunapening.




Stjórnborð

Minna letur Stærra letur