Selásskólakrakkar stóđu í Hjörvari - Fréttir
14.5.2010
Selásskólakrakkar stóđu í Hjörvari
Í gær fór fram fjölskylduhátíð hjá foreldrafélagi Selásskóla. Meðal atriða á hátíðinni var fjöltefli Hjörvars Steins við þá nemendur Selásskóla sem hafa verið á skákæfingum Skákakademíunnar í vetur. 20 nemendur tóku þátt í fjölteflinu og var meirihlutinn af þeim í öðrum bekk.
Krakkarnir stóðu sig ágætlega og var Hjörvari á orði eftir fjölteflið hversu einbeiting þeirra hefði verið góð. Hjörvar vann 13 skákir en leyfði 7 jafntefli.
Skákin í Selásskóla hefur gengið með eindæmum vel í vetur og næsta vetur er stefnt á áframhaldandi samstarf Selásskóla og Skákakademíu Reykjavíkur.





