Sumarið framundan og fjöltefli - Fréttir
12.5.2010
Sumarið framundan og fjöltefli
Þá er vetrarstarfi Skákakademíunnar smám saman að ljúka. Kennslu er lokið í nokkrum skólum og fáeinar kennslustundir eftir í öðrum. Í sumar mun Akademían vera með skákkennslu fyrir krakka á aldrinum 5-16 ára og mun áherslan vera á þá sem skarað hafa fram úr í starfi Skákakademíunnar og taflfélaga borgarinnar í vetur. Stefnt er að því að skipulag sumars verði klárað fyrir helgi.
Það er þó nóg eftir af vetrarstarfinu en í flestum skólunum lýkur starfinu með einhverjum skemmtilegum viðburði. Þannig mun Hjörvar Steinn Grétarsson tefla fjöltefli við nemendur Selásskóla á morgun, en fjölteflið ef hluti af fjölskylduskemmtun skólans. Í næstu viku, 20. maí, mun svo stórmeistarinn Þröstur Þórhallsson reyna sig við bestu skákmenn Hólabrekkuskóla á sal skólans.





