Beint á leiđarkerfi vefsins
Skákakademía Reykjavíkur

Gríđarleg spenna á landsmóti! - Fréttir

8.5.2010

Gríđarleg spenna á landsmóti!

Ţá er næst síðasta degi Landsmóts lokið. Það er ekki hægt að segja annað en að spennan sé gríðarleg fyrir síðustu tvær umferðirnar sem tefldar verða á morgun. Í yngri flokki eiga fjórir skákmenn möguleika á sigri og í eldri flokki fimm skákmenn!

Friðrik Þjálfi setti heldur betur strik í toppbaráttuna í eldri flokki með því að leggja Nökkva Sverrisson að velli með góðum sigri. Nökkvi á þó enn möguleika á sigri ef hann nær að leggja forustusauðinn frá Laugarvatni; hinn knáa Emil Sigurðarson. Nökkvi þarf þó að treysta á hagstæð úrslit í öðrum skákum og þarf helst að treysta á að Emil vinni skólabróður sinn; hinn eitilharða júdókappa Örn Leó Jóhannsson. Í fyrri umferð morgundagsins mætir Örn Friðriki Þjálfa. Friðrik gæti stimplað sig almennilega inn í toppbaráttuna vinni hann þá skák. Örn ætlar sér eflaust að leggja allt í sölurnar gegn Friðrik og fá þá hreina úrslitaskák gegn Emil í síðustu umferðinni. Páll Andrason og Mikael Jóhann hafa sennilega misst af lestinni og hefur hinn síðarnefndi gert aðeins of mikið af jafnteflum í mótinu. Mikael getur teflt mjög vel en mætti taka meiri áhættu í stöðum sínum í því skyni að knýja fram sigur.

Ţað er ljóst að allt getur gerst í eldri flokknum á morgun!

 Í yngri flokknum er Eyjapeyinn Kristófer Gauta efstur ásamt Rimaskóladrengjunum Oliver Aron og Degi Ragnars. Þeir eru allir taplausir og eiga Rimaskóladrengirnir, sem gerðu jafntefli innbyrðis, eftir að tefla við Kristófer. Kristófer er töluvert reyndari en þeir félagar sem hafa þó verið undanfarið verið í töluverðri framför. Kristófer ætti því að hafa sigur gegn þeim köppum en allt gæti þó gerst. Í umferðunum í dag var allt meir og minna eftir bókinni: fjórir skákmenn skera sig úr frá hinum. Ein innbyrðis viðureign hinna efstu fjórmenninga fór fram í dag;

Kristófer Gauta og Jón Kristinn gerðu jafntefli í sex leikjum!

 Það er skelfileg staðreynd að ófermdir drengir semji jafntefli í sex leikjum á Landsmótinu í Skólaskák! Hvaðan hafa hinir efnilegu piltar fengið þá hugmynd að það sé í lagi að semja stutt jafntefli á algerlega óteflda skák? Nú er það staðreynd að margir af hinum sterkustu og virkustu skákmönnum Íslands líta á það sem sjálfsagðan hlut að semja jafntefli í innan við 10 leikjum. Án efa hefur þessi hvimleiða framganga nokkra okkar sterkustu skákmanna áhrif á þessa drengi.




Stjórnborđ

Minna letur Stćrra letur