Fréttir - 2012
9.5.2012
Sumarnámskeiđ SR hefjast 18. júní
Sumarnámskeið SR munu hefjast 18. júní. Þau munu verða með svipuðu sniði eins og síðustu ár en námskeiðin síðasta sumar nutu mikilla vinsælda. Kennarahópurinn verður svipaður, þar verða bæði landsliðsmenn og reyndir kennarar.
26.4.2012
Donika sigrar á Skólaskákmóti Hólabrekkuskóla
Donika Kolica sigraði með fullu húsi á meistaramóti Hólabrekkuskóla í Breiðholti, sem fram fór í dag. Donika sigraði í öllum 7 skákum sínum, og lagði m.a. Dag Kjartansson, besta skákmann skólans til margra ára.
17.4.2012
Reykjavíkurmótiđ í Skólaskák
Reykjavíkurmótið í Skólaskák fer fram laugardaginn 28. apríl og verður teflt í Sjóminjasafninu.
17.4.2012
Sundlaugar Kópavogs skákvćddar
Landsliðsflokkur í skák fer nú fram í Kópavogi og í tengslum við hann fara fram ýmsir skemmtilegir skákviðburðir. Í morgun var sundlaugum Kópavogs færð að gjöf skáksundlaugarsett frá Skákakademíu Reykjavíkur.
29.3.2012
Meistaramót skólanna framundan
Meistaramót skólanna eru nú framundan. Þau fara fram fyrstu vikurnar eftir páska þegar teflt verður um meistaratitil hvers skóla. Skólamótin eru reyndar þegar hafin í nokkrum skólum.
15.3.2012
Íslandsmót barnaskólasveita framundan
Íslandsmót barnaskólasveita fer fram nú um helgina í Rimaskóla.
Teflt verður klukkan 11:00 á laugardag og 13:00 á sunnudag.
8.3.2012
Úrslit í Reykjavik Barna Blitz
Úrslit í Reykjavik Barna Blitz fara fram í Hörpu næstu daga.
Átta manna úrslitin fara fram fimmtudag og hefjast 15:30. Tefldar verða tvær fimm mínútna skákir. Bráðabani ef skákmenn verða jafnir að loknum 2 skákum.
Átta manna úrslitin fara fram fimmtudag og hefjast 15:30. Tefldar verða tvær fimm mínútna skákir. Bráðabani ef skákmenn verða jafnir að loknum 2 skákum.
27.2.2012
Vignir og Hilmir fyrstir inn í úrslit Barna Blitz
Fyrstu undanrásir Reykjavik Barna Blitz fóru fram á laugardagsæfingu Taflfélags Reykjavíkur laugardaginn 25. febrúar.
14.2.2012
Laugalćkjarskóli og Rimaskóli Reykjavíkurmeistarar
Þrjátíu sveitir mættu á Reykjavíkurmót grunnskólasveita sem haldið var í félagsheimili Taflfélags Reykjavíkur í gærkveldi. Fyrirfram hefði mátt búast við öruggum sigri Rimaskólasveitarinnar, enda margfaldir Íslandsmeistarar, en þegar ljóst var að hvorki Dagur Ragnarsson né Jón Trausti Harðarson væru mættir til leiks mátti búast við því að einhverjar sveitir myndu veita sveitinni samkeppni.
13.2.2012
Skákkennsla hafin í Norđlingaskóla
Skákakademían er byrjuð með skákkennslu í Norðlingaskóla. Mikill skákáhugi er meðal skólastjórnenda en Siv Vígþórsdóttir skólastjóri var einu sinni skólastjóri á Hallormsstað þar sem mikið skáklíf blómstraði.





