Fréttir - 09 - 2011
26.9.2011
Skákmenn heiđruđu minningu Fischers í Paradís: Vin sigrađi Selfoss
Skákmenn úr Vin og Skákfélagi Selfoss háðu æsispennandi keppni þegar heimildarmyndin Bobby Fischer gegn heiminum var sýnd á RIFF, alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni, í Bíó Paradís á sunnudaginn. Tefld var slembiskák (Fischer Random) en það er afbrigði skákarinnar sem Fischer heitinn þróaði og er við hann kennt. Skákakademía Reykjavíkur stóð að viðburðinum í samvinnu við RIFF.
5.9.2011
Skákkennsla á mánudegi
Í dag, mánudaginn 5. september, fór fram kennsla í fjórum skólum á Reykjavíkursvæðinu. Þetta voru Selásskóli, Dalskóli, Fellaskóli og Breiðagerðisskóli. Í öllum þessum skólum fór kennsla fram hjá 3. bekk en flestir skólar Reykjavíkursvæðisins bjóða 3. bekkingum sínum upp á skákkennslu inni á stundatöflu. Nemendur eru mjög áhugasamir að kynnast leyndardómum skáklistarinnar og bætast þeir því í hóp þeirra fjölmörgu barna sem nú þegar hafa lært skák hjá skákkennurum Skákakademíunnar.





