Fréttir - 01 - 2011
25.1.2011
Skákkennsla hafin í Dalskóla
Skákakademían hefur hafið kennslu í Dalskóla í Úlfarsárdal. Dalskóli var stofnaður síðastliðið haust og er í senn grunnskóli, leikskóli og frístundamiðstöð. Frá stofnun skólans hafa skólastjórnendur sýnt skákkennslu mikinn áhuga.





