Fréttir - 2011
19.12.2011
Hilmir Freyr sigurvegari á MS Jólaskákmótinu
Hilmir Freyr Heimisson, 10 ára, sigraði á Jólaskákmóti MS og Skákakademíu Reykjavíkur í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Mótið var æsispennandi og bráðskemmtilegt, enda mörg af efnilegustu börnum landsins meðal keppenda.
Hilmir Freyr hlaut 7 vinninga í 8 skákum. Vignir Vatnar Stefánsson, 8 ára, og Nansý Davíðsdóttir, 9 ára, hlutu jafnmarga vinninga og Hilmir Freyr, en voru örlítið lægri á stigum. Keppendur voru rúmlega 70, á aldrinum 6 til 12 ára.
Sérstök verðlaun voru veitt fyrir bestan árangur í hverjum árgangi og þau verðlaun hrepptu Joshua Davíðsson, Bassirou Mbaye, Vignir Vatnar Stefánsson, Nansý Davíðsdóttir, Hilmir Freyr Heimisson, Jón Otti Sigurjónsson og Kristófer Jóel Jóhannesson.
Verðlaun fyrir bestan árangur stúlkna hlutu Nansý, Hildur B. Jóhannsdóttir og Svandís Rós Ríkharðsdóttir.
Samhliða MS Jólaskákmótinu bauð Hjörvar Steinn Grétarsson, yngsti landsliðsmaður Íslands, gestum og áhorfendum í Ráðhúsinu í fjöltefli. Hjörvar Steinn er 18 ára og náði á dögunum tveimur áföngum af þeim þremur sem þarf til að verða stórmeistari í skák.
Guðni Ágústsson fv. ráðherra flutti setningarávarp og lék fyrsta leikinn. Guðni hvatti börnin til dáða í skákinni, enda væri skáklistin frábærlega til þess fallin til að þjálfa heilann og hefði góð áhrif á námsgetu. Ráðherrann fyrrverandi, sem er sjálfur snjall skákmaður, gaf börnunum þrjú heilræði: Taka lýsi, drekka mjólk og borða lambakjöt!
MS Jólaskákmótið í Ráðhúsinu heppnaðist í alla staði vel og sýndi vel þá grósku sem er í skáklífi ungu kynslóðarinnar.
Mjög vegleg verðlaun voru veitt og margir keppendur unnu líka í happdrætti mótsins. Vinningar og verðlaun komu frá Heimilistækjum, Eddu útgáfu, Borgarleikhúsinu, Bjarti, Sögum útgáfu, Steineggi, Sölku, Senu, 12 tónum, Nexus, Pennanum, Óðinsauga, ÍTR, Húsdýragarðinum.
13.12.2011
Metţátttaka á Jólaskákmóti TR og Skóla- og frístundasviđs!
4.12.2011
Friđrik og framtíđin
Fjöltefli Friðriks Ólafssonar í Hörpu við meistara framtíðarinnar heppnaðist frábærlega. Friðrik, sem verður 77 ára í janúar, sýndi leiftrandi taflmennsku í mörgum skákum, en krakkarnir sýndu líka hvað í þeim býr.
Friðrik vann 8 skákir, gerðir 4 jafntefli og tapaði einni, fyrir Degi Ragnarssyni, 14 ára nemanda í Rimaskóla.
30.11.2011
Friđrik međ fjöltefli!
20.11.2011
Leifur og Veronika byrjuđ ađ kenna í Melaskóla
11.11.2011
Vinaskákmót á mánudaginn
Vinafélagið og Skákakademía Reykjavíkur standa fyrir skákmóti í Vin, Hverfisgötu 47, mánudaginn 14. nóvember klukkan 13. Tefldar verða 6 umferðir með sjö mínútna umhugsunartíma. Vegleg verðlaun eru í boði frá velunnurum Vinjar.
9.11.2011
Nýtt skákblogg á dv.is
28.10.2011
Skákćfingar hjá KR
14.10.2011
Vinafélagiđ stofnađ - Allir saman!
Vaskur hópur tók sæti í stjórn Vinafélagsins, sem stofnað var á fimmtudagskvöld. Tilgangur Vinafélagsins er að standa vörð um og efla samfélagið í Vin, athvarfi Rauða krossins fyrir fólk með geðraskanir við Hverfisgötu. Þangað koma árlega mörg hundruð einstaklingar, sem líta á Vin sem griðastað. Lokun vofir yfir athvarfinu, en því ætlar Vinafélagið að breyta.
26.9.2011
Skákmenn heiđruđu minningu Fischers í Paradís: Vin sigrađi Selfoss
5.9.2011
Skákkennsla á mánudegi
Í dag, mánudaginn 5. september, fór fram kennsla í fjórum skólum á Reykjavíkursvæðinu. Þetta voru Selásskóli, Dalskóli, Fellaskóli og Breiðagerðisskóli. Í öllum þessum skólum fór kennsla fram hjá 3. bekk en flestir skólar Reykjavíkursvæðisins bjóða 3. bekkingum sínum upp á skákkennslu inni á stundatöflu. Nemendur eru mjög áhugasamir að kynnast leyndardómum skáklistarinnar og bætast þeir því í hóp þeirra fjölmörgu barna sem nú þegar hafa lært skák hjá skákkennurum Skákakademíunnar.
27.8.2011
Valsmenn öruggir siguvegarar á Iceland Express-mótinu
27.8.2011
Iceland Express mótiđ - stađan eftir 2. umferđir
Valsmenn eru á vængjum þöndum á Iceland Express mótinu - Reykjavíkurmóti skákfélaga sem nú er í gangi á Hlíðarenda. Víkingar og Leiknir voru báðir lagðir 4-0. Á sama tíma náðu Fylkismenn óvæntu jafntefli gegn Frömurum. Lið Vals skipa fjórir Íslandsmeistarar: Héðinn Steingrímsson, Helgi Ólafsson, Jón L. Árnason og Jón Viktor Gunnarsson.
Viðureign Vals og Frams er beðið með mikilli eftirvæntingu en hún fer fram í sjöttu og næstsíðustu. Áhorfendur eru hvattir til að fjölmenna.
23.8.2011
Iceland Express Reykjavíkurmót íţróttafélaga
Skákmenn klæðast keppnistreyjum:
Iceland Express Reykjavíkurmótið á laugardaginn!
Keppnislið frá íþróttafélögunum í höfuðborginni mætast á laugardaginn á Iceland Express Reykjavíkurmótinu í skák. Fjögurra manna lið keppa um sigurinn, og munu margir bestu og efnilegustu skákmenn landsins klæðast keppnistreyju síns félags.
Iceland Express Reykjavíkurmótið fer fram í Valsheimilinu að Hlíðarenda og hefst klukkan 13. Mótið er liður í Hverfishátíð miðborgar og Hlíða, og er búist við fjöri og fjölmenni.
23.8.2011
Skákkennsla hafin í grunnskólum Reykjavíkur
17.8.2011
Skákhátíđ fjölskyldunnar
Ýmsir skemmtilegir og léttir atburðir fyrir alla skákmenn, skákáhugamenn og fjölskyldur þeirra.
Dagskráin hefst 13:00 og stendur til 21:00.
Meðal viðburða má nefna klukkufjöltefli stórmeistara við grunnskólasveit Rimaskóla, Reykjavíkurmótið í leifturskák (1 mín. Á hvern keppenda), hraðskákeinvígi Stefáns Kristjánssonar og Nansý Davíðsdóttur, Hrafns Jökulssonar og Ingu Birgis og Guðlaugar Þorsteinsdóttur og Donika Kolica, sýningu á skákborði frá einvígi Fischers og Spassky, skákbókasölu, skáksettasölu, kynning á víkingaskák, skákmót Máta, velunnarar Skákakademíunnar heiðraðaðir o.fl.
8.8.2011
Viđ erum ein fjölskylda gekk vonum framar
Söfnunin um helgina gekk vonum framar. Söfnunin fékk mikla umfjöllun í fjölmiðlum og krakkarnir eru hetjur. Þau eru hetjur eins og börnin í Sómalíu sem eru sigurvegarar helgarinnar en handa þeim safnaðist tæp milljón króna.
4.8.2011
Viđ erum ein fjölskylda - RKÍ í heimsókn
Eins og alla morgna í sumar var kátt á hjalla í Skákakademíunni ţennan morguninn. Björn Ívar fór yfir fræðin af mikilli festu og fengu svo krakkarnir góða heimsókn um miðjan tímann. Var þar kominn Ţórir Guðmundsson frá Rauða Krossi Íslands.
2.8.2011
Teflt til styrkar sómölskum börnum
28.7.2011
Skák út um allt og sumarnámskeiđ
22.7.2011
Skák út um allt
21.7.2011
Björn og Donika sigurvegarar
Mikið er um að vera þessa vikuna í skáklífi Reykjavíkur. Á mánudag var sett þátttökumet á Skákmóti í Vin og í hádeginu í dag mætti vel á þriðja tug keppenda í Skákakademíuna þar sem fór fram annað Sumarskákmót Skákakademíunnar. Seinni partinn á morgun stendur svo Taflfélag Reykjavíkur fyrir skák á Klambratúni.
22.6.2011
Hjörvar međ fjöltefli
6.6.2011
Ingvar Ávaxtakóngur
Vel á þriðja tug manns mætti í Skákakademíuna á fallegu föstudagssíðdegi í þeim tilgangi að gæða sér á ljúffengum ávöxtum og grípa í tafl. Viðburður þessi markaði upphaf sumarstarfssemi Skákakademíunnar en í sumar verða um 50 krakkar á námskeiðum í Tjarnargötunni.
30.5.2011
Súpuskák 2011
Hvað eiga skák og súpa sameiginlegt? Jú, nefnilega súpuskák! Í framhaldi af þessari uppgötvun var blásið til mótsins Súpuskák 2011. Á hinum bjarta og fallega mánudegi 30. maí mættu hinir ýmsu skákmenn í Skákakademíuna, þáðu súpu hjá Róberti Vert Lagerman og gripu í tafl. Þar sem flestir keppendur voru bundnir við vinnu eftir hádegi var mótið snarpt; fimm umferðir hraðskák.
27.5.2011
Skák í leikskólum
Skákkennsla í leikskólum Reykjarvíkurborgar, hefur nú staðið í þrjú ár. Óhætt er að segja að þetta verkefni hefur slegið all hressilega í gegn, hjá krökkunum, starfsfólki leikskólanna, og foreldrum barnanna.
6.5.2011
Sumarskákmót Fjölnis
30.4.2011
Úrslit á Skólaskákmóti Reykjavíkur
Teflt var um 3 sæti á Landsmóti í eldri flokki og tvö sæti í yngri flokki.
Báðir titlarnir fóru á kunnuglegar slóðir; Þeir félagar úr Rimaskóla Dagur Ragnarsson og Oliver Aron Jóhannesson voru öruggir sigurvegarar og báru af í sínum flokkum. Drengirnir tveir eru í svakalegri framför eins og stigahækkanir þeirra á nýjum lista sýna.
29.4.2011
Bíó og bćkur
Ţað var kátt á hjalla í Skákakademíunni á miðvikudagskvöldið. Eins og venjulega á miðvikudagskvöldum var opið hús. Þemað í þetta skiptið; bíó og bækur.
15.4.2011
Bókakvöld framundan
14.4.2011
Guđmundur sigrar á Skákkvöldi
Landsliðsflokkur hefst senn á Austurlandi - teflt verður á Eiðum. Flokkurinn er vel skipaður tíu af sterkustu skákmönnum landsins. Þrír stórmeistarar og þrír alþjóðlegir meistarar munu mæta til leiks og einn af þeim ákvað að hita upp í Skákakademíunni.
12.4.2011
Skák og skemmtun í Vatnaskógi
Ţeir 36 skákkrakkar sem dvöldu í skákbúðum Fjölnis og Skákakademíu Reykjavíkur helgina 9. og 10. apríl komu til baka sælir og þreyttir eftir stórskemmtilega og gagnlega dagskrá sem ekkert hlé var gert á nema yfir blánóttina. Skipulagið gekk út á skákkennslu og frjálsan leik við iþróttir og leiki í þessum sælureit sem sumarbúðir KFUM í Vatnaskógi eru. Skákkrakkarnir sem voru með í för voru á aldrinum 7 - 14 ára og mynduðu þau einn æðislegan hóp að mati okkar fararstjóranna, Helga Árnasonar frá Fjölni og Stefáni Bergssyni og Andreu M. Gunnarsdóttur frá Skákakademíu Reykjavíkur.
10.4.2011
Veronika Steinunn međ brons á NM
Veronika Steinunn Magnúsdóttir varð um helgina í 3. sæti á NM stúlkna sem fram fór í Danmörku. Veronika tefldi í flokki stúlkna fæddar 1998 og síðar. Veronika tefldi einnig í þessum flokki á NM stúlkna 2010 sem þá fór fram á Íslandi. Veronika endaði þá um mitt mót.
5.4.2011
Rimaskóli sigrar á Reykjavíkurmóti - silfriđ í Vesturbćinn
Sigrum Rimaskóla fjölgar; Reykjavíkurmeistaratitill nú staðreynd. Sigur þeirra á Reykjavíkurmóti grunnskólasveita 2011 var afar öruggur. Sveitin missti aðeins niður 2.5 vinning af 28 mögulegum og fékk því alls 25.5 vinning. Sveitin var nær eins skipuð og á Íslandsmóti grunnskólasveita sem fór fram nýlega. Sveitina leiddi Dagur Ragnarsson, á öðru borði Oliver Aron Jóhannesson, á þriðja borði Jón Trausti Harðarson og á því fjórða Kristinn Andri Kristinsson.
3.4.2011
Rimaskóli Íslandsmeistari
Rétt á fimmta tug sveita tók þátt á Íslandsmóti barnaskólasveita sem fram fór í Rimaskóla um helgina. Að loknum fyrri keppnisdegi voru heimamenn í a-sveit Rimaskóla með nauma forystu á Álfhólsskóla - áður Hjallaskóla, og báru þessar sveitir af öðrum sveitum. Sveitirnar höfðu mæst í 5. umferð og skilið jafnar eftir hörkuviðureign. Í sjöttu og sjöundu umferð má segja að úrslit mótsins hafi ráðist. .
31.3.2011
Grćnlandsfarar í heimsókn
Ţað var fjölskrúðugur hópur skákmanna- og kvenna sem lagði leið sína í Skákakademíuna í kvöld. Ungir og efnilegir krakkar í þjálfun hjá Akademíunni, þrír forsetar og framkvæmdastjóri, Grænlandsfarar og skákdrottningar svo sitthvað sé nefnt.
28.3.2011
Skákbúđir í Vatnaskógi
24.3.2011
Stelpućfing á föstudaginn
24.3.2011
Mátar í heimsókn
Taflfélagið Mátar er ungt félag á mikilli uppleið. Þannig hefur félagið komist upp um þrjár deildir á þremur árum. á næsta ári mun liðið tefla meðal þeirra bestu og verður spennandi að sjá hvernig þeim Mátapiltum mun ganga að takast á við erlenda ofurstórmeistara og undrabörn. Heyrst hefur að þeir hyggist styrkja sig fyrir komandi átök en hvað er hæft í þeim gróusögum skal framtíðin ein láta í ljós.
20.3.2011
Rimaskóli Íslandsmeistari grunnskólasveita
A-sveit Rimaskóla varð um liðna helgi Íslandsmeistari grunnskólasveita. Sigur skólans var einkar glæsilegur; aðeins 1.5 vinningur tapaðist. Helsti keppinautur skólans var Salaskóli, og ekki í fyrsta skipti sem þessir erkifjendur berjast um sigur í sveitakeppni.
15.3.2011
Íslenskur sigur á Stelpuskák 2011
14.3.2011
Oliver Aron sigurvegari Barnablitz
11.3.2011
Úrslit í Barnablitz framundan
4.3.2011
Undankeppni Barnablitz lokiđ
Síðasta úrtökumótið fyrir Deloitte Reykjavík Barnablitz fór fram miðvikudaginn 2. mars í Skákakademíunni. Flestir sterkustu skákkrakkar Reykjavíkur og nágrennis sem höfðu ekki unnið sér inn þátttökurétt voru mætt til þess að tefla um síðasta sætið. Mótið var nokkuð jafnt og allir að vinna alla ef svo má að orði komast.
24.2.2011
Stefán Bergsson ráđinn framkvćmdastjóri Skákakademíunnar
23.2.2011
Skákkynning í Vogaskóla
Skákakademían stóð í dag fyrir skákkynningu í Vogaskóla. Skákkynningin var í samstarfi við Skákskóla Íslands en Þröstur Þórhallsson hélt fyrirlestur fyrir nemendur unglingadeildar um undirstöðuatriði skáklistarinnar. Það voru nær 50 nemendur sem hlýddur á fyrirlestur Þrastar og vöktu nokkur ungmenni athygli fyrir laglegar lausnir á þeim skákþrautum sem lagðar fyrir þau.
15.2.2011
Skákkennsla ađ hefjast í Suđurhlíđarskóla
9.2.2011
Rimaskólastelpur sigursćlar
Um helgina var mikið um að vera meðal efnilegustu skákstúlkna landsins þegar Íslandsmót grunnskóla í stúlknaflokki og Íslandsmót stúlkna einstaklingskeppni fóru fram laugardag og sunnudag. Ungar og bráðefnilegar stúlkur úr Rimaskóla komu, sáu og sigruðu alla þessa þrjá Íslandsmeistaratitla.





