Fréttir - 2010
23.9.2010
Ný stjórn Skákakademíunnar
Aðalfundur Skákakademíu Reykjavíkur fór nýverið fram.
Á fundinum var kosin ný stjórn Skákakademíunnar.
Óttar Proppé tók við stjórnarformennsku af Júlíusi Vífli Ingvarssyni.
1.9.2010
Sumarnámskeiđum lokiđ - vetrarstarf ađ hefjast
20.7.2010
Námskeiđ hálfnuđ - og gott betur..
Nú eru námskeið sumarsins hálfnuð og gott betur en það. Námskeiðin standa yfir í 10. vikur og nú er 6. vikan í gangi. Á námskeiðunum eru 5 flokkar; Unglingaflokkur, laugamelaflokkur, strákaflokkur, stelpuflokkur og barnaflokkur. Laugamelaflokkurinn dregur nafn sitt af Laugalækjarskóla og Melaskóla; uppistaðan í þeim hópi er skipuð efnilegum skákmönnum úr þessum sterku skákskólum.
5.7.2010
Stefán Ţór sigurvegari á ţriđja Sumarmóti Skákakademíunnar og Vinnuskólans
29.6.2010
Bragi sigurvegari á öđru Sumarmóti Akademíunnar og Vinnuskólans
9.6.2010
Viđtal viđ Sigurbjörn bóksala
Sigurbjörn Björnsson er flestum skákmönnum vel kunnur. Hann hefur í yfir áratug verið einn af
sterkari og virkari skákmönnum Íslands og náð góðum árangri á mótum innanlands, t.d. Skákþingi Reykjavíkur sem hann hefur unnið oftar en einu sinni. Síðastliðinn vetur hóf Sigurbjörn innflutning á skákbókum, við sérstaklega góðar undirtektir skákheims.
Fréttadeild Skákakademíunnar tók bóksalann tali.
9.6.2010
Námskeiđ hafin
Í sumar stendur Skákakademían fyrir námskeiðum fyrir bestu skákkrakka Reykjavíkur. Sá háttur var hafður á að þeim krökkum sem skarað hafa fram úr í vetur var sérstaklega boðið á námskeiðin. Um 50 krökkum var boðið og þáðu nær allir boð Akademíunnar.
17.5.2010
Vel sóttur Vesturbćjarbiskup
Laugardaginn 15. maí fór fram skákmótið Vesturbæjarbiskupinn og var teflt í safnaðarheimili Neskirkju. Mótið var fyrst haldið í fyrra og fór því nú fram í annað sinn. Að þessu sinni voru um 40 skákmenn mættir til leiks á aldrinum 6-16 ára og var teflt í fjórum flokkum. Skákmennirnir eiga það allir sameiginlegt að koma úr Vesturbænum og er Vesturbæjarbiskupinn 2010 enn ein staðfesting á þeim rísandi skákáhuga sem er vestur í bæ.
14.5.2010
Selásskólakrakkar stóđu í Hjörvari
Í gær fór fram fjölskylduhátíð hjá foreldrafélagi Selásskóla. Meðal atriða á hátíðinni var fjöltefli Hjörvars Steins við þá nemendur Selásskóla sem hafa verið á skákæfingum Skákakademíunnar í vetur. 20 nemendur tóku þátt í fjölteflinu og var meirihlutinn af þeim í öðrum bekk.
12.5.2010
Sumariđ framundan og fjöltefli
Ţá er vetrarstarfi Skákakademíunnar smám saman að ljúka. Kennslu er lokið í nokkrum skólum og fáeinar kennslustundir eftir í öðrum. Í sumar mun Akademían vera með skákkennslu fyrir krakka á aldrinum 5-16 ára og mun áherslan vera á þá sem skarað hafa fram úr í starfi Skákakademíunnar og taflfélaga borgarinnar í vetur. Stefnt er að því að skipulag sumars verði klárað fyrir helgi.
8.5.2010
Gríđarleg spenna á landsmóti!
Ţá er næst síðasta degi Landsmóts lokið. Það er ekki hægt að segja annað en að spennan sé gríðarleg fyrir síðustu tvær umferðirnar sem tefldar verða á morgun. Í yngri flokki eiga fjórir skákmenn möguleika á sigri og í eldri flokki fimm skákmenn!
7.5.2010
Línur ađ skýrast á landsmóti
Ţá eru línur að nokkru farnar að skýrast á Landsmótinu í skólaskák. Þeir sem fyrirfram voru taldir líklegir sigurvegarar eru í báðum flokkum smám saman að skera sig úr. Í eldri flokki samanstendur toppurinn af Mikaeli Jóhanni, Erni Leó, Emil Sigurðarsyni og Nökkva Sverrissyni. Mikael Jóhann er búinn með nokkuð sterkt prógramm og nýtur þess að hafa einn unnið Örn Leó. Örn vann mikilvægan sigur í dag á Páli Andrasyni þegar sá síðarnefndi sá sig nauðbeygðan til að gefast upp eftir 12 leiki.
7.5.2010
Landsmótiđ í skólaskák hafiđ - pistill frá fyrsta degi
Landsmótið í skólaskák hófst með pompi og prakt í Skákhöllinni í Faxafeni 12 í gær. Fulltrúar víðsvegar af landinu voru mættir til leiks og var mikil spenna í loftinu.
24.4.2010
Síđustu dagar Skáklistahátíđar
Skáklistahátíð leikskólabarna er nú í fullum gangi í Ráðhúsi Reykjavíkur. Skáklistahátíðin er haldin af Skákakademíunni sem hefur sl. 2 ár staðið fyrir kennslu í 4 leikskólum höfuðborgarinnar undir handleiðslu Róberts Lagerman skákmeistara.





