Beint á leiđarkerfi vefsins
Skákakademía Reykjavíkur

Fréttir - 2009

25.11.2009

Örn Leó og Donika sigursćl á Unglingamóti Taflfélags Reykjavíkur 2009

Barna- og unglingameistaramót Taflfélags Reykjavíkur auk Stúlknameistaramóts félagsins fór fram sunnudaginn 15. nóvember í Skákhöllinni Faxafeni 12. Alls öttu 35 ungir skákmenn og konur kappi en keppendur voru 15 ára og yngri. Tveir nemendur Skákakademíu Reykjavíkur voru sigursælir á mótinu en það voru þau Örn Leó Jóhannsson, nemandi í Laugalækjarskóla, sem sigraði með yfirburðum á mótinu og Donika Kolica, nemandi í Hólabrekkuskóla, sem varð hlutskörpust stúlkna. Örn hlaut því nafnbótina Drengjameistari TR 2009 en Donika er Stúlknameistari TR 2009. Þau hlutu forláta farandbikara með nafninu sínu á til varðveislu í eitt ár en einnig bikara til eignar og medalíur.

3.7.2009

Fyrsta sumarmót Vinnuskólans í Reykjavík og Skákakademíunnar

Fyrsta sumarmót Vinnuskóla Reykjavíkur og Skákakademíu Reykjavíkur fór fram miðvikudaginn 1.júlí síðastliðinn við útitaflið í Lækjargötu. Mótið hófst kl.13.00 og voru tefldar fimm umferðir með 7 mín. umhugsunartíma. Veðrið var afar milt og gott þótt að sólin hafi ekki látið á sér kræla að þessu sinni. Alls tóku 24 skákmenn þátt í mótinu og settu börn úr skák-og leikjanámskeiði Skákakademíu Reykjavíkur sem og unglingar úr Landnemahópi Vinnuskólans í Reykjavík mikinn svip á mótið.

4.6.2009

Tilraunaverkefni í fjórum leikskólum

Leikskólar1Síðastliðið haust hófst tilraunaverkefni Skákakademíunnar með skákkennslu í leikskólum Reykjarvíkurborgar. Fyrir valinu urðu leikskólarnir Hlíðarborg, Njálsborg, Lindarborg og Barónsborg. Ákveðið var að kenna elstu krökkum leikskólanna, eða útskriftarhópnum, börn sem fara síðan beint í grunnskólann. Eins og gefur að skilja kunnu börnin vart mannganginn, svo þarna hófst kennslan á algjörum byrjunarreit. Skemmst er frá því að segja að þetta verkefni hefur algjörlega slegið í gegn, hjá börnunum, foreldrum og starfsmönnum leikskólanna.

11.5.2009

Ađ lokinni Skákhátíđ Reykjavíkur

Reykjavik Blitz unglingaflokkur 1Dagana 24.mars til 1.apríl 2009 stóð Skákakademía Reykjavíkur fyrir glæsilegri skákhátíð í Reykjavík sem á alþjóðlegum vettvangi bar heitið „Reykjavík Chess Festival". Gríðarlegur metnaður var lagður í dagskrá hátíðarinnar og var áherslan lögð á það að skákáhugamenn á öllum aldri gætu fundið eitthvað við sitt hæfi.

Krúnudjásn hátíðarinnar var XXIV. Alþjóðlega Reykjavíkurskákmótið sem í áranna rás er orðið eitt virtasta opna skákmót heims - mót sem að allir skákmenn vilja taka þátt í.  Fyrsta Alþjóðlega Reykjavíkurskákmótið var haldið árið 1964 og síðan þá hefur mótið verið haldið á tveggja ára fresti. Með tilkomu Skákakademíu Reykjavíkur tókst í fyrsta skipti að halda mótið með aðeins árs millibili og er því um að ræða stórt framfaraskref í íslensku skáklífi.

30.4.2009

Geirţrúđur sigrar á grunnskólamóti KR

frá skákmótinuSunnudaginn, 23.nóvember, stóðu skákdeild KR og Skákakademía Reykjavíkur fyrir Grunnskólamóti KR sem fram fór í KR-heimilinu, Frostaskjóli.  Skákakademía Reykjavíkur hefur kennt skák í Melaskóla, Grandaskóla og Landakotsskóla á þessari önn og má segja að áhuginn í skólunum hafi verið kveikjan að mótinu sem og mikill áhugi KR-inga til að rífa upp skákstarf í hverfinu.  Þar innanborðs eru margir kröftugir einstaklingar og þegar hugmyndin kviknaði var ekkert verið að tvínóna við hlutina - mótinu var einfaldlega hrint í framkvæmd.



Stjórnborđ

Minna letur Stćrra letur