Beint á leiđarkerfi vefsins
Skákakademía Reykjavíkur

Fréttir - 2008

13.11.2008

Veronika Steinnunn - Skákmeistari Melaskóla

Melaskoli2Meistaramót Melaskóla fór fram 14.nóvember í hátíðarsal skólans. Skráningarblöð í mótið höfðu gengið um stofur skólans undanfarna viku og þegar upp var staðið höfðu 86 krakkar í 4-7.bekk skráð sig til leiks. Sannarlega glæsileg þátttaka.

29.10.2008

Café Rót

Á dögunum komu fulltrúar Skákakademía Reykjavíkur, þeir Björn Þorfinnsson og Róbert Lagerman, færandi hendi og gáfu Café Rót tíu taflsett til að gestir og gangandi geti teflt af krafti yfir rjúkandi kaffibolla.  Móttökurnar voru afar hlýlegar eins og við var að búast hjá kaffihúsi sem svo sannarlega er rekið með hjartanu.

29.10.2008

Kennsla hafin í fjórum leikskólum

Lindaborg2Skákakademía Reykjavíkur hefur hafið kennslu í fjórum leikskólum á höfuðborgasvæðinu. Um er að ræða leikskólanna, Barónsborg, Lindaborg, Hlíðaborg og Njálsborg.  Róbert Lagerman sér um kennsluna sem er eingöngu fyrir elstu nemendurna. Um er að ræða tilraunaverkefni og er markmiðið að í lok annarinnar kunni allar nemendurnir mannganginn.




Stjórnborđ

Minna letur Stćrra letur