Fréttir
19.12.2011
Hilmir Freyr sigurvegari á MS Jólaskákmótinu
Hilmir Freyr Heimisson, 10 ára, sigraði á Jólaskákmóti MS og Skákakademíu Reykjavíkur í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Mótið var æsispennandi og bráðskemmtilegt, enda mörg af efnilegustu börnum landsins meðal keppenda.
Hilmir Freyr hlaut 7 vinninga í 8 skákum. Vignir Vatnar Stefánsson, 8 ára, og Nansý Davíðsdóttir, 9 ára, hlutu jafnmarga vinninga og Hilmir Freyr, en voru örlítið lægri á stigum. Keppendur voru rúmlega 70, á aldrinum 6 til 12 ára.
Sérstök verðlaun voru veitt fyrir bestan árangur í hverjum árgangi og þau verðlaun hrepptu Joshua Davíðsson, Bassirou Mbaye, Vignir Vatnar Stefánsson, Nansý Davíðsdóttir, Hilmir Freyr Heimisson, Jón Otti Sigurjónsson og Kristófer Jóel Jóhannesson.
Verðlaun fyrir bestan árangur stúlkna hlutu Nansý, Hildur B. Jóhannsdóttir og Svandís Rós Ríkharðsdóttir.
Samhliða MS Jólaskákmótinu bauð Hjörvar Steinn Grétarsson, yngsti landsliðsmaður Íslands, gestum og áhorfendum í Ráðhúsinu í fjöltefli. Hjörvar Steinn er 18 ára og náði á dögunum tveimur áföngum af þeim þremur sem þarf til að verða stórmeistari í skák.
Guðni Ágústsson fv. ráðherra flutti setningarávarp og lék fyrsta leikinn. Guðni hvatti börnin til dáða í skákinni, enda væri skáklistin frábærlega til þess fallin til að þjálfa heilann og hefði góð áhrif á námsgetu. Ráðherrann fyrrverandi, sem er sjálfur snjall skákmaður, gaf börnunum þrjú heilræði: Taka lýsi, drekka mjólk og borða lambakjöt!
MS Jólaskákmótið í Ráðhúsinu heppnaðist í alla staði vel og sýndi vel þá grósku sem er í skáklífi ungu kynslóðarinnar.
Mjög vegleg verðlaun voru veitt og margir keppendur unnu líka í happdrætti mótsins. Vinningar og verðlaun komu frá Heimilistækjum, Eddu útgáfu, Borgarleikhúsinu, Bjarti, Sögum útgáfu, Steineggi, Sölku, Senu, 12 tónum, Nexus, Pennanum, Óðinsauga, ÍTR, Húsdýragarðinum.
13.12.2011
Metţátttaka á Jólaskákmóti TR og Skóla- og frístundasviđs!
4.12.2011
Friđrik og framtíđin
Fjöltefli Friðriks Ólafssonar í Hörpu við meistara framtíðarinnar heppnaðist frábærlega. Friðrik, sem verður 77 ára í janúar, sýndi leiftrandi taflmennsku í mörgum skákum, en krakkarnir sýndu líka hvað í þeim býr.
Friðrik vann 8 skákir, gerðir 4 jafntefli og tapaði einni, fyrir Degi Ragnarssyni, 14 ára nemanda í Rimaskóla.
30.11.2011
Friđrik međ fjöltefli!
20.11.2011
Leifur og Veronika byrjuđ ađ kenna í Melaskóla
11.11.2011
Vinaskákmót á mánudaginn
Vinafélagið og Skákakademía Reykjavíkur standa fyrir skákmóti í Vin, Hverfisgötu 47, mánudaginn 14. nóvember klukkan 13. Tefldar verða 6 umferðir með sjö mínútna umhugsunartíma. Vegleg verðlaun eru í boði frá velunnurum Vinjar.
9.11.2011
Nýtt skákblogg á dv.is
28.10.2011
Skákćfingar hjá KR
14.10.2011
Vinafélagiđ stofnađ - Allir saman!
Vaskur hópur tók sæti í stjórn Vinafélagsins, sem stofnað var á fimmtudagskvöld. Tilgangur Vinafélagsins er að standa vörð um og efla samfélagið í Vin, athvarfi Rauða krossins fyrir fólk með geðraskanir við Hverfisgötu. Þangað koma árlega mörg hundruð einstaklingar, sem líta á Vin sem griðastað. Lokun vofir yfir athvarfinu, en því ætlar Vinafélagið að breyta.





